17.12.1945
Efri deild: 50. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (1449)

66. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson) :

Allshn. hefur haft þetta mál til meðferðar, en ekki orðið á einu máli um það. Þó hefur meiri hluti n. samþ. frv. eins og það er, en einstakir menn hafa áskilið sér rétt til að hafa óbundnar hendur varðandi brtt., sem fram kynnu að koma. Einn nm. leggur til, að frv. verði fellt, en fimmti nefndarmaðurinn var fjarverandi.

Frv. hefur að geyma breyt. á 7. gr. laga nr. 87. Þar er ákvæði um, hvernig og með hvaða hætti menn séu kjörgengir til sveitarstjórnar. Í 2. mgr. 7. gr. núgildandi l. um sveitarstjórnarkosningar er bannað, að hjón og menn skyldir að niðjatali sitji samtímis í hreppsnefnd eða bæjarstjórn. Þar sem bæjarstjórnir eru skipaðar allt að 15 fulltrúum, virðist engin réttmæt ástæða til þess að banna með lögum, að hjón eða menn skyldir að niðjatali sitji samtímis í bæjarstjórn og jafnvel líka í hreppsnefnd. Þeir, sem að þessu frv. standa, telja rétt að afnema slíkar kvaðir úr lögum, en láta kjósendur sjálfa ráða um slíkt. Um fyrra atriðið, að kjörgengi miðist við kosningaaldur, er það að segja, að það virðist ekki líklegt, að menn sækist eftir að kjósa í hreppsnefnd aðra en þá, sem hafa verið búsettir það lengi, að þeir séu orðnir kunnugir málum sveitarinnar. Hins vegar getur staðið þannig á, að maður, sem er vel að sér um málefni sveitarinnar og kjósendur vilja fá í hreppsnefnd, flytji í sveitarfélagið eftir að kjörskrá hefur verið samin og hafi því ekki öðlazt kosningarrétt.

Fyrri brtt. miðar að því, að menn geti fengið kjörgengi, þó að þeir hafi ekki kosningarrétt, enda hafi þeir verið búsettir í sveitarfélaginu minnst 3 mánuði. — Um síðara atriðið er nokkuð svipað og það fyrra, eða að veita kjósendunum sem frjálsastar hendur í vali á forustumönnum. Ákvæðið í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 81 hefur miðað að því að koma í veg fyrir, að einstakar fjölskyldur fengju óeðlilega mikil áhrif í sveitarstjórn, en slíkt virðist eðlilegt að láta kjósendur ráða um. Og það yrði að teljast óréttlæti, ef t. d. faðir og sonur stæðu framarlega í tveimur mismunandi flokkum. Nú vildu báðir þessir flokkar bjóða fram til sveitarstjórnar þessa forustumenn sína, en vegna þessara ákvæða í lögum væri það ekki leyfilegt. Meiri hluti n. hefur fallizt á, að þetta ákvæði verði fellt niður og sett í vald kjósendanna.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða meir um þetta að svo stöddu.