19.12.1945
Neðri deild: 56. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (1473)

152. mál, gjaldeyrissjóður og alþjóðabanki

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Herra forseti. Mér er sagt, að fresta verði þessum fundi um kl. 3, svo að ég skal ekki vera langorður. — Þessu frv. var ekki útbýtt fyrr en á síðustu stundu, en í skýrslu þeirri, sem þingmenn hafa fengið í hendur, er útdráttur úr skýrslu alþjóðabankans, og sáum við því ekki ástæðu til að birta hana aftur.

Í fyrstu gr. frv. er lagt til, að ríkisstj. sé heimilað fyrir hönd Íslands að gerast aðili að stofnun gjaldeyrissjóðs og alþjóðabanka samkv. tillögum, sem samþ. voru í júlí í sumar á fundi hinna sameinuðu þjóða í Bretton Woods í Bandaríkjunum. Í Bandaríkjunum sættu stofnanir þessar andstöðu frá hinum sterku einkabönkum, þar sem búizt var við, að eftirspurn eftir dollurum í öðrum löndum mundi orsaka kröfu um aukna dollaraútgáfu. Í Englandi var það einkum fundið til, að ef þetta næði fram að ganga, yrði að hverfa frá þeirri stefnu, að brezka heimsveldið væri viðskiptakerfi út af fyrir sig. En því var til svarað, að Bretland gæti horfið að fyrri aðferðum, ef þetta reyndist ekki vel. Nú er svo komið, að bæði Bretland og Bandaríkin hafa samþ. eða munu á næstunni samþ. þátttöku í þessum stofnunum. Vitanlega er hér mest undir stórþjóðunum komið, en öllum hinum sameinuðu þjóðum og þeim, er þær styrkja (United and Associated Nations), er gefinn kostur á að vera með. Kostnaður sá, sem verða mundi af okkar þátttöku, mun vera um 1¾ millj. kr., og er lagt til í þessu frv., að ríkisstj. sé heimilað að taka þessa upphæð að láni til að annast skyldugreiðslur til þessara stofnana. Nú er heimilt að kalla eftir þessu fé, en almennt er þetta einungis skoðað sem ábyrgð, svo að okkar kostnaður yrði raunverulega ekki annað en vextir af 1¾ millj. kr.

Þá er lagt til, að úr gildi séu felld lög um gjaldeyrisvarasjóð, en 4. og 5. gr. þeirra laga eru teknar upp í þetta frv. Gert er ráð fyrir, að stofnunin sjálf greiði ferðakostnað fulltrúa þeirra, sem sæti eiga í stjórn hennar, svo að útgjöld vegna þátttöku í þessum félagsskap geta ekki talizt mikil. En hins vegar fylgir þátttökunni sá kostur, að við eigum kost á að ráðgast um alþjóðamál og fá þar atkvæðisrétt. Sú kvöð fylgir þessu, að við megum ekki breyta okkar gengi um meir en 10% í einu nema með samþykki sjóðsstjórnarinnar. En ef við verðum ekki ánægðir, er okkur heimilt að segja okkur úr þessum félagsskap. Tilgangurinn með þessari kvöð er aðallega sá að koma í veg fyrir gengislækkanir í samkeppnisskyni, og vil ég heldur telja þetta til kosta. Alþjóðabankanum er fyrst og fremst ætlað að lána til framkvæmda og aukinnar framleiðslu. Hann er ekki skyldur að veita öllum hluthöfunum lán, en engir aðrir en þeir hafa lántökurétt. Ekki er skylt að greiða nema hluta af hlutafénu til bankans í gulli, eða um 18%. Það, sem við þurfum að greiða þannig, verður um 250000 dollarar.

Aðallega er bankanum ætlað að hjálpa með ábyrgðum, og ákvarðast lánstraust hverrar þjóðar við það eitt, hvað bankastjórnin telur heppilegt. Þótt svo standi á hjá okkur nú, að við þurfum ekki á slíkum lánum að halda, þá getur alltaf komið fyrir, að þær þjóðir, sem við vildum selja vörur, gætu ekki greitt þær öðruvísi en í gegnum alþjóðabankann. Yfirleitt er það markmiðið að auka viðskipti þjóða á milli eins og var fyrir 1914, meðan gullfóturinn gilti:

Ég sé að svo stöddu ekki ástæðu til að taka fleira fram. Hér er ekki um mikinn kostnað að ræða, en hins vegar hægt að hafa mikið gagn af þátttökunni. Enn fremur má vera, að það yrði ekki vel séð af öðrum þjóðum, ef við tækjum ekki þátt í þessu, og er þess þá líka að gæta, að þrengra getur orðið um inntöku síðar.