17.12.1945
Neðri deild: 55. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1526)
148. mál, nýbyggingarráð
Sveinbjörn Högnason:
Hv. form. fjhn., þm. V.-Ísf., hneykslaðist mjög á því, að ég skuli blanda mér í mál, sem fjhn. hefur haft með höndum eða hann sem form. n. hefur eitthvað skipt sér af. (PZ: Hefur ekkert skipt sér af). Já, hefur ekkert skipt sér af. Þó að hann sé form. virðulegrar n., þá má líka taka það fram, að ég veit ekki til þess, að áður hafi formenn nefnda kvartað yfir því, að aðrir alþm. slettu sér í mál, sem þeirra n. hefðu með höndum. Það er eins og eitthvert sérleyfi þurfi til þess að ræða þetta mál að áliti hv. þm. V.-Ísf. Hv. form. fjhn., þm. V.-Ísf., veit, að um þetta mál hefur verið farið á bak við þau form, sem ríkja í starfsháttum Alþ. Og það er sjálfsagt, að alþm. víti það og láti það koma í ljós alveg eins, þó að það sé hv. þm. V.-Ísf., sem í hlut á. Máske heldur hann, að hann sé eitthvað friðhelgur í þessum efnum. Ég læt hann vita, að svo er ekki eftir mínu sjónarmiði. Og ég tala um mál, sem koma frá hans hendi, alveg eins og frá öðrum hv. þm. Það er upplýst mál, að hér hafa verið viðhafðar rangar starfsaðferðir, og ég sé ekki, hvað er við það að athuga — það ætti raunar að telja það sjálfsagt mótmælalaust, — að þskj. þetta verði prentað upp og frv. síðan flutt á réttan hátt.