20.12.1945
Efri deild: 57. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (1546)

148. mál, nýbyggingarráð

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þetta frv. með umr. hér. Ég álít, að þetta frv. sé meinlaust, en gagnslítið. Það er, alveg eins og hæstv. forsrh. tók fram, viljayfirlýsing um það, sem við vildum gjarnan geta gert. En sannleikurinn er sá, að eins og gjaldeyris- og innflutningsmálum okkar er háttað nú og gjaldeyrismálin hafa verið eftir styrjöldina, og jafnvel eins og nú horfir við, þá eru ekki ýkja miklar líkur til þess, að hægt sé að framkvæma ákvæði þessa frv. En það skilst mér þó, að verði að gera, ef það er samþ. sem lög. Og út af fyrir sig er ekki nema gott um þessa viljayfirlýsingu að segja, eins og hæstv. forsrh. tók fram. En ég vildi benda á í viðbót við þetta, að mér virðist þessi löggjöf koma þvert á þá fyrirætlun ríkisstj. að gefa út frílista yfir ýmsar vörur, sérstaklega þær, sem keyptar eru frá Englandi. Það er kannske byggt á misskilningi, en ég fæ ekki séð, að þetta tvennt geti farið saman. Ef tryggja á, að í árslok verði eftir 15% af útflutningsverðmætinu, þá er það auðsætt mál, að mjög sterkar innflutningshömlur verða að vera. Ég skal svo ekki orðlengja frekar um þetta mál. Ég geri ráð fyrir, að ég greiði ekki atkv. um það af ástæðum, sem ég gat um í upphafi.