20.12.1945
Neðri deild: 58. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (1563)

151. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1946

Gísli Sveinsson:

Herra forseti. Mér þykir fyrir því, um leið og ég tel það óskýranlegt og óskiljanlegt, hvers vegna ríkisstjórn og stuðningsflokkar hennar hafa ekki getað fallizt á það, sem ég sagði hér við 1. umr. þessa frv., um að velja 1. september fremur sem samkomudag næsta reglulegs Alþingis en 1. október. Þetta er næsta óskiljanlegt, og vil ég ekki gera hæstv. ríkisstj. meiri getsakir en hún gæti unnið til. En hún vekur á sér meiri grunsemdir með þessari framkomu sinni en áður virtist ástæða til: Í þessu efni mætti vel fara milliveginn og velja 1. september. Það mælir allt með þeim degi sem samkomudegi næsta reglulegs Alþingis, nokkuð mælir með 1. ágúst, en ekkert með 1. október. Í september þarf að taka miklar og afdrifaríkar ákvarðanir um mál, sem hér hefur verið minnzt nokkuð á í þessum umræðum. Það verður að segja, að hæstv. ríkisstjórn hefur svikið í því máli, og getur hún ekki gert sínar ráðstafanir nema með bráðabirgðalögum: Ég er viss um, að þetta er eðli málsins, og er vissulega undarlegt, að hæstv. landbrh. skuli ekki finna orðið, hvað hann rak sig óþyrmilega á í september s. l. Verð ég að segja, að ég hefði vel getað unnað honum þess, að honum yrði ekki annað eins á aftur. Af þessum ástæðum vil ég miðla málum og benda á annan samkomudag Alþingis. Þegar taka þarf örlagaríkar ákvarðanir, má ekki koma inn í meðferð mála á Alþ. slíkt kæruleysi, að mönnum sé alveg sama. Almenna hliðin á málinu er þessi, að við vitum, að þing kemur saman bráðlega aftur eftir nýárið, en það er sama sem að þingið standi allan veturinn. Nú er það vitað mál, að slíkt þinghald kostar mikið fé, og það verður áreiðanlega talið og reiknað, er tímar líða fram. Líkurnar eru miklar fyrir því, að ljúka hefði mátt öllum störfum þingsins fyrir jól, ef það hefði komið saman 1. sept. Ef nú væri heill mánuður til stefnu, mundu allir segja, að gerlegt væri að ljúka þingstörfum. Mér er vægast sagt alveg óskiljanlegt, að ríkisstj. skuli ekki fallast á það. Ríkisstj. hefur að vísu vald til að kalla þingið saman fyrr, ef sérstakar ástæður gefa tilefni til. En við eigum að hafa hönd í bagga með þessum og þvílíkum ráðstöfunum. Ég fæ ekki séð, að það sé neitt hrós fyrir ríkisstj., þótt hún fái lið til að fylgja þessu máli. Þetta er atriði, sem ekki á að snerta neina stjórnmálastefnu. Illt er, ef slíkt kæruleysi um þjóðmál er komið inn í meðferð mála á Alþ. En ég vona, að samkomulag náist, og því leyfi ég mér að leggja fram skrifl. brtt., að í stað 1. okt. komi 1. sept.