20.12.1945
Neðri deild: 58. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1569)

151. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1946

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Hv. 2. þm. S.-M. lauk máli sínu með því að segja, að það væri ekki til sóma fyrir ríkisstjórnina að leita ekki samkomulags um þetta mál. Það var á þinglegan hátt, að mál þetta var tekið fyrir til meðferðar og leitað samkomulags. Og ég hef fyrir mér orð hv. form. n. um horfur á því. Það tókst ekki samkomulag um málið. En ég hygg, að hv. 2. þm. S.-M. hafi sjálfur, með sinni málsmeðferð hér í þd., gert það, sem hægt er, til þess að tryggja það, að það er ekki auðið að ganga til samkomulags um þetta mál. Hann hefur flutt málið þannig. Það er ekki ráð, ef ná á samkomulagi um eitthvert mál, að fara með öðrum eins ofsa í mál eins og hv. ræðumenn Framsfl. hafa gert.

Ég nenni ekki að fara út í almennar eldhúsumr. út af þessu máli. En út af rökunum, sem hv. 2. þm. S.-M. er að tala um, þá vil ég minna á það, — þótt ég telji það óþarft, — að varðandi löggjöf slíka sem þessa, sem sett var í fyrra áður en þing kom saman, hafði ríkisstj. tryggt sér þingfylgi, áður en hún setti bráðabirgðal. Og ef ríkisstj. hefði gengið illa að fá það þingfylgi, þá hefði verið kallað saman þing til þess að skera úr um það efni. — En annars er það svo enn sem fyrr, að aðalmergur þessarar sóknar er sá, að sagt er, að hér sé skapað óheppilegt fordæmi. En það er skjallega sannað og það er vitað, að eitthvað hefur verið gert í áttina við þetta fyrr. En það er verið að gefa í skyn, að hér sé verið að gera eitthvað verra. Og svo er sagt, að á eftir komi svo einhverjir, sem taki tilefni af þessu, sem hér er verið að gera, og geri eitthvað enn verra. — En það voru 9. des. 1933 samþ. lög, sem ákváðu, að samkomudagur reglulegs Alþ. 1934 skyldi verða hinn 1. október, „hafi konungur ekki tiltekið annan samkomudag fyrr á árinu.“ En nú er það lagt á vald ríkisstj., hvenær samkomudagurinn skuli vera, en hann má þó ekki vera síðar en 1. október. Nú má það ekki vera síðar, heldur má það vera fyrr. Ég vil minna á það, að hv. 2. þm. S.-M. fékk árið 1933 alveg sérstakt tækifæri til að láta álit sitt í ljós um frv. það, sem þá var á ferðinni um frestun á samkomudegi Alþ., sem er að því leyti verra en þetta frv., sem hér er á ferðinni og hann berst á móti eins og einhverju ódæði, að það var bindandi, en þetta er aðeins um, að hámarkið um frestun samkomudagsins er til tekið. Og um það frv. sagði þessi hv. þm. þá, að hann legði til, að frv. það yrði samþ. óbreytt, er hann skrifaði undir nál. um það. Það er gott að hafa sannfæringu, ef hún væri einhver hjá hv. 2. þm. S.-M. í þessu máli, en það er ekki alveg eins gott að hafa fortíð. (EystJ: Það hefur hæstv. forsrh. fundið óþyrmilega). Það er kannske óuppgert mál, ef hv. þm., sem fram í greip, á við það, sem hann hefur lesið hér upp eftir mig. Því að við getum báðir lesið upp úr þingræðum og hvorugur haft mikið um annan að segja eftir þær umr. (EystJ: Lítið hefur hæstv. ráðh. lesið). Mér varð litið í bók áðan, og það gerði þetta gagn, að ég rak mig á fortíð hv. 2. þm. S.-M. Það er erfitt að nota roðið eitt. — Ég vil segja þessum hv. þm., að það dugir ekki að berja sér á brjóst með háværum ummælum um það, að af öllu vondu sé fortíðin verst. En svo, þegar þeir eru sjálfir dregnir fram í dagsljósið og skjallega sönnuð myndin af þeim frá 1933, að þeir eru þar að gera verra en það, sem gert er hér, þá segja þeir, að það sé ekki að marka fordæmin. Og ef þeir halda svona áfram þá held ég, að ekki sé meira eftir af þeirra rökum en roðið eitt.