20.12.1945
Neðri deild: 62. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í B-deild Alþingistíðinda. (1584)

151. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1946

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Herra forseti. Það er nú talað allmikið um þetta frv., og mig undrar satt að segja þrautseigjan hjá hv. 2. þm. S.-M. við að endurtaka það, sem hann er búinn að marg segja hér áður. Hv. þm. gat um það, að það væri eitthvað öðru til að dreifa nú heldur en hefði verið, þegar hann mælti fastast með því á þingi 1933, að samkomudagur Alþ. væri færður til haustsins. Og hann gat alveg sérstaklega um það, að það væri náttúrlega annað, þó að þeir, hann og þeir, sem með honum voru í stjórn, settu bráðabirgðalög um landbúnaðarmál, um það hefði verið kosið o. þ. l.

Ég hygg, að það megi fullyrða, að þegar kjósendur gengu að kjörborðinu 1934, hafi ekki legið neitt lagafrv. fyrir þeim um þá landbúnaðarlöggjöf, sem svo var sett með bráðabirgðalögum, heldur einhverjir frumdrættir. Þó efa ég, hvað þeir hafi verið greinilegir. Svo voru bráðabirgðalögin sett, og þingið kom ekki saman. Hvernig voru þau bráðabirgðalög? Og þingviljinn, sem stóð á bak við þau bráðabirgðalög? Ég hygg, að það hafi verið 25 menn af 49 þm. Og ef ég man rétt, var til þess að halda utan um þessa lagasetningu, sendur maður upp í hv. efri deild, sem að vísu var úr öðrum flokki en ríkisstjórnin, sem þar var svo tekinn á mála hjá hv. Framsfl. (EystJ: Var hann ráðinn hjá hæstv. núv. forsrh.?). Já, hann var fastráðinn hjá mér. Kosinn sem uppbótarþm. Bændaflokksins og fastráðinn hjá mér, en gekk úr skiprúmi. (HelgJ: Honum hefur ekki líkað vistin). Það hlýtur að vera, eða þá að hann hefur fengið meiri aflahlut á hinum staðnum. Svona var þjóðarviljinn og þingmeirihlutinn fyrir þeirri lagasetningu þá. Það er þess vegna þannig, að því meira sem hv. 2. þm. S.-M. talar um þetta mál, því minni verður vegur hans í sambandi við það. Það er eins og örlögin hafi elt ykkur, hv. framsóknarmenn, og sýnt ykkur fortíð ykkar, því að allt, sem þið vítið nú, hefur komið fyrir ykkur og miklu verra. (GSv: Er það betra fyrir það, þó að framsóknarmenn hafi hent það? — HelgJ: Það er fyrirmyndin hjá hæstv. forsrh. alltaf). Og það er í raun og veru meira en formið, sem ber á milli hér í öllum þessum efnum. Við göngum skemmra nú en þið gerðuð þá, sem mest fettið fingur út í þetta.

Mér finnst ekki hægt að finna nein rök á móti því, sem við erum að gera, önnur en þau, ef menn vilja halda því fram, sem hv. 10. landsk. segir, að nægilegt sé, að þingið komi saman 1. september, til þess að ljúka þinginu fyrir jól, en hitt nægi ekki til þess, að setja þingið 1. október. En ef þingið getur ekki lokið störfum fyrir jól þó að það komi saman 1. október, þá er heldur engin vissa fyrir því, að það geti það, þó að það komi saman 1. september.

En út af því, sem hv. 2. þm. S.-M. sagði, vil ég segja það, að við erum ekki að miklast af þessum fordæmum, sem minnzt hefur verið á frá 1933. En það var farið að tala um þetta af því, að byrjað var að tala um, að við værum að skapa hættulegt fordæmi. Og af þessum ástæðum leiðum við þessa menn svolítið aftur í tímann og sýnum þeim ofurlítinn kafla úr þeirra ævisögu og segjum: Herrar mínir! Þetta þótti ykkur ágætt þá. Þá var það góð latína, eins og hv. 2. þm. S.-M. sagði, hjá þessum mönnum. En nú á það að vera eitthvert ódæði að gera það, sem er hliðstætt. En hvað er aðalefni þessa máls? Efni þessa máls er þetta — Náttúrlega getum við slitið þingi á morgun og kallað það saman 1. febrúar, látið það þing sitja eins og þörf þykir til þess að afgreiða nauðsynleg mál, rofið það síðan og stofnað til kosninga. En að fresta þessu þingi, sem nú situr, er til þess að spara tíma og prentun og er yfirleitt heppilegri vinnubrögð. — Hvað gerði hv. Framsfl. í desember 1933? Hann ákvað að slíta þingi þá og láta það koma saman 1. október. Hvað er svo það, sem hv. þm. Framsfl. þykir vera goðgá nú? Við ætlum að fresta þingi því, er nú situr, til 1. febrúar, til þess að afgreiða mál, sem fyrir þinginu liggja og kunna upp að koma. Og ef þetta gefur höggstað á ríkisstj. og er hneykslanlegt einræði, þá er hægt að fella sig undan allri sök með því að segja: Á morgun verður þinginu slitið, en ekki frestað. Það er búið að afgreiða fjárlög, og þingið verður svo kvatt saman 15. febrúar og haft þá eins lengi og þurfa þykir. Þetta er hægt að gera, en virðist ekki vera þau heppilegustu vinnubrögð. En ef hv. framsóknarmenn leggja ákaflega mikið upp úr því, þá má náttúrlega ræða þennan möguleika við flokkinn.

Hv. 2. þm. S.-M. hefur ráðizt hér á mig margsinnis í ræðum sínum með svívirðingum, eins og hann alltaf gerir, ef hann ræðst á mig. Ég svara honum stundum. En ég nenni ekki að svara honum nema einstöku sinnum. Eitt, sem hann sakar mig fyrir, er það, að ég taki ekki nógu mikið tillit til stjórnarandstöðunnar. Ég álít, að mér beri að taka það tillit til stjórnarandstöðunnar, sem ástæða er til. En ég álít ekki rétt að taka það tillit til stjórnarandstöðunnar að kalla ekki saman þing 1. október. En ef hv. 2. þm. S.-M. er ákafur fylgismaður þess að slíta þinginu á morgun, þá mun ég tala um það við ríkisstj. og flokkana, sem að henni standa. En hvað vinnst við það, sé ég ekki, — annað en það, að ég felli mig undan ámæli um það að hafa viljað beita hér einræði, en brjóta niður þingræði og lýðræði. Það er ekkert af þessu ásetningur minn, sem er verið að nudda manni upp úr hér. Og satt að segja tek ég ekki hátíðlega þær umr., sem hér hafa átt sér stað gegn þessu frv., þegar talað hefur verið um þessar hvatir eða dróttað að mér, að ég hefði þær eða stjórnarliðið, eins og heyrzt hefur hér, af því að ég hélt, að hv. framsóknarmenn vissu vel, að það stendur ekkert illt bak við flutning þessa máls. En ég fer að halda, að þeir hafi ekki áttað sig á kjarna málsins, og þess vegna læt ég þessi orð falla.