22.11.1945
Neðri deild: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1007 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)
62. mál, þjóðjarðasala og kirkjujarða
Frsm. (Jón Sigurðsson) :
Herra forseti. Út af því, sem hv. 1. landsk, sagði, vil ég aðeins benda á það, að raunverulega er enginn eðlismunur á frv. og 1. eins og þau eru nú. Mér skilst, að það, sem okkur skilur á um, sé aðeins það, að hann óskar eftir, að þingið fjalli um þessi mál í hverju tilfelli, en ég álít ástæðulaust að draga þingið inn í það um hverja einstaka jörð, heldur ætti að nægja að fela ráðherra að fara með það umboð eins og í svo mörgu öðru. Mér virðist, að okkur skilji ekki á um annað.
Að því er snertir aths. hv. þm. V.-Húnv., þá er það alveg rétt aths. hjá honum, að segja má, að fram komi þar nokkurt ósamræmi. N. hefur lítils háttar minnzt á þetta, en þess er þá að gæta, að þeir menn, sem falla undir það, eru einmitt þeir, sem hafa búið mjög lengi á sömu jörð, kannske marga tugi ára og eiga því mikið af öllu því, sem á jörðinni er, t. d. meginið af öllum húsum. Ég persónulega lít svo á, að menn, sem eru búnir að búa þannig á jörðunum, séu vel að því komnir að fá einhverja uppbót fyrir það með lægra kaupverði, því að það getur orðið erfitt og enda ómögulegt að fara að gera það upp, hvað ríkissjóður á í jörðinni og hvað ábúandi. Mér virðist því, að þessir menn mættu gjarnan fá ábýlisjarðir sínar keyptar eitthvað lægra verði en þeir, sem hafa ekki búið á jörð sinni nema stutta stund. Annars skal ég lýsa; yfir því, að n. er fús til að athuga þetta nánar fyrir 3. umr.