14.02.1946
Efri deild: 64. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1650)

138. mál, landnám ríkisins

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 307, er lagt fram af landbn. neðri deildar, en upphaflega komið frá búnaðarþingi. Frv. fór í gegnum Nd. án umræðna eða nokkurrar andstöðu og með samþykki allra deildarmanna.

Breyting sú, er frv. felur í sér, er, að tillag ríkissjóðs hækkar úr 1/3 millj. í ½ millj. kr. En í rauninni er það ekki hækkun, þar sem áður var gert ráð fyrir, að atvinnubótafé yrði varið í þessu skyni, en nú er ekki líklegt, að um það verði að ræða. Þetta er aðalbreytingin, sem frv. felur í sér, en svo er einnig nokkur breyting í 4,. gr. frá því, sem áður var, þar sem þá mátti einungis vinna á landi, sem var eign ríkisins, en nú er gert ráð fyrir, að bæjar- og sveitarfélög geti einnig látið vinna, og gæti það orðið vísir til nýbýlahverfa í sveitum.

Við nefndarmenn vorum sammála um að telja þessar breytingar til bóta og mælum með því, að frv. verði samþ. óbreytt.