25.10.1945
Neðri deild: 16. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)
39. mál, girðingar kringum hveri og laugar
Flm. (Sigurður E. Hlíðar) :
Á þskj. 41 hef ég leyft mér að flytja frv. um girðingar kringum hveri og laugar, þar sem eigendum er skylt að girða af hveri og þær laugar, sem hafa yfir 50 gráðu hitastig eða þar yfir. Frv. er ekki fyrirferðarmikið, og í grg., sem fylgir, held ég, að tekið sé fram allt, sem um það þarf að segja. Öllum er ljóst, að svo eru vítin að varast þau, og mörg slys og það dauðaslys hafa orðið fyrir það, að fólk hefur fallið í hveri, auk þess sem fjöldi af skepnum hefur skaðbrennt sig í þessum uppsprettum, og er ekki vansalaust, að það skuli vera látið viðgangast eins og gert hefur verið hingað til.
Ég ætla ekki að hafa lengri framsögu um þetta, en leyfi mér að óska eftir, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til allshn.