25.10.1945
Neðri deild: 16. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1029 í B-deild Alþingistíðinda. (1687)
39. mál, girðingar kringum hveri og laugar
Flm. (Sigurður E. Hlíðar) :
Ég skal ekki lengja mikið umr.
Það er lítil ástæða til að hræða menn með kostnaðinum, en vitanlega hlytu þessar girðingar að kosta eitthvað.
Ef það er rétt, að af hverum og heitum laugum stafar stórhætta, sem ekki sé rétt að láta afskiptalausa, þá á ekki að horfa í kostnaðinn. Líka má taka það til greina, að margir hverir eru notaðir í opinbera þágu og einstaklinga, svo að það margborgar sig að eiga þá, þó að gengið sé svo frá þeim, að hvorki mönnum né skepnum stafi hætta af.