08.02.1946
Neðri deild: 65. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1031 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)

39. mál, girðingar kringum hveri og laugar

Páll Zóphóníasson:

Mér skilst, að rétt sé að bæta við 1. gr. frv. svo hljóðandi: Hreppsnefndir verði látnar gera skrá yfir hveri og laugar í hreppnum. — Ég ætla ekki núna að koma með brtt., en tel nauðsyn, að þetta verði ákveðið áður en frv. er afgr., og vona, að allshn. taki þetta til athugunar.