14.02.1946
Neðri deild: 67. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (1705)

39. mál, girðingar kringum hveri og laugar

Garðar Þorsteinsson:

Það er eitt, sem ég veit ekki, hvort hv. þm. Borgf. hefur gert sér ljóst, og ég vil benda hv. þm. á, að ég hef það eftir manni, sem mun nú um tíma hafa verið mesti dýravinur þessa lands, Jón heitinn Pálsson, að hann vissi ekki dæmi þess, að fé eða skepnur yfirleitt hefðu farið í heita hveri eða laugar. Hvort þefurinn, sem hverinn gefur frá sér, eða eitthvað annað, aðvarar dýrin, veit ég ekki. Styrkleiki girðinganna þarf því ekki að miðast við annað en það, að þær séu nægileg aðvörun fyrir menn. Til þess ætti að nægja einn strengur, nema þar sem börn geta komið nálægt. Þar þurfa strengirnir að vera fleiri. Ég tel því ástæðulaust að miða girðingarnar við það, að skepnur geti ekki komizt undir eða yfir þær. Ég vildi aðeins láta þetta álit mitt koma hér fram, en eins og hv. frsm. n. sagði, er það í höndum lögreglustjóra að ákveða þetta.