14.02.1946
Neðri deild: 67. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)

39. mál, girðingar kringum hveri og laugar

Frsm. (Gunnar Thoroddsen) :

Ég lít svo á, að lögreglustjóraeftirlitið taki bæði til þess, hvort girðingar eru gerðar kringum hveri og laugar, og einnig til þess, hvort girðingarnar, sem reistar eru, eru nægilega traustar. Hins vegar er það rétt hjá hv. þm. Borgf., að það getur verið hagkvæmara, að sveitarstjórnir kveði einnig á um gerð girðinganna um leið og þær gera skrá yfir hverina. Ég mun því hér með flytja viðbótarbrtt. við þessa brtt., og hef ég ekki getað borið hana undir n. Legg ég til, að á eftir brtt., „Sveitarstjórn skal semja skrá um þá hveri og laugar, sem girða skal, og tilkynna eigendum,“ komi þessi viðbót: Einnig skal hún kveða á um gerð girðinga. — Og er þá komið nálægt hugsunarhætti hv. þm. (PO: Þetta tel ég nægilegt).