21.02.1946
Efri deild: 69. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (1712)

39. mál, girðingar kringum hveri og laugar

Frsm. (Steingrímur Aðalsteinsson) :

Herra forseti. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um frv. þetta. Það er búið að fara í gegnum Nd. og hefur lítið verið breytt, eða a. m. k. er það komið hingað til Ed. með einni lítils háttar breyt.

Í 2. gr. frv. stendur: „Sé slíkum girðingum eigi komið upp innan árs frá gildistöku laga þessara, skal lögreglustjóri héraðsins láta setja þær upp á kostnað eigenda, og má taka kostnaðinn lögtaki.“ N. áleit, að frestur þessi ætti ekki að vera miðaður við gildistöku laganna, heldur aðvörun af hreppstjóra. Verið getur, að nokkuð sé liðið á frest þann, sem tiltekinn er í frv., áður en hlutaðeiganda berst ákvörðun sveitarstjórnar, svo að tæplega sé nægur tími til að koma upp girðingunum. N. þótti því rétt að miða frestinn við það, hvenær landeiganda berst tilkynning hlutaðeigandi sveitarstjórnar.

Um efni frv. er ekki ástæða að fjölyrða. Tilgangur þess er að koma í veg fyrir slys, en þess munu mörg dæmi, að slys hafi orðið af þessum sökum.

Ég vil fyrir hönd allshn. mælast til, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem nál. ber með sér.