13.02.1946
Neðri deild: 66. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)
163. mál, lax- og silungsveiði
Flm. (Jón Sigurðsson) :
Herra forseti. Þetta er smámál, og þarf því ekki langa grg. með því.
Í laxveiðil. er svo fyrir mælt, að til þess að koma á fót fiskiræktarfélagi, þurfi að vera búið að koma í fiskihverfi, en það eru allar sveitir og ár, sem liggja að sama vatnahverfi. Skagafjörður er eitt fiskihverfi. Reynslan hefur orðið sú, að þar hefur reynzt árangurslaust að stofna fiskiræktarfélag, vegna þess að ekki hefur fengizt nógu sterkur meiri hluti. Vitanlegt er, að bergvötnin, sem undir það falla, liggja undir uppþurrkun fiskjar. Ábúendum við þessar ár er umhugað um að fá þær friðaðar með lagabreyt. Ég hef borið þetta frv. undir veiðimálanefnd, og mælir hún eindregið með því, að þetta sé gert.
Ég vænti þess svo, að frv. gangi greiðlega í gegnum hv. deild, og óska, að því verði vísað til landbn.