07.11.1945
Neðri deild: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (1755)

60. mál, raforkulög

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Mig langar til að þakka meiri hl. iðnn. fyrir að taka að sér flutning þessa máls á þ. þessu. Ég tel, eins og aðrir, mál þetta svo þýðingarmikið og nauðsynlegt, að það verði að fá einhverja afgreiðslu á þessu þ., og vegna þessarar nauðsynjar vænti ég, að samvinna takist, þó að misjafnra sjónarmiða kunni að gæta.

Ein ástæða um nauðsyn þessa máls er sú, að nú þegar er byrjað á framkvæmdum, sem byggjast á grundvelli þessara till. og valda óþægindum, ef frv. þetta verður ekki að lögum. Ég get getið þess, að t. d. er hafin rafveita um svo að segja allan Reykjanesskaga, eða nánar tiltekið í langflest þorp skagans. Eins er hugsað að leiða rafmagn til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar og enn fremur til Húsavíkur frá Laxárvirkjuninni. Og meira að segja hefur verið aflað töluvert mikils efnis til þessara framkvæmda. Nú er eðlilegt, að fé til þessara framkvæmda sé fengið úr raforkusjóði, en það er ekki hægt, nema löggjöf sé sett þar að lútandi, og er því þetta mikil nauðsyn og hverjum ljóst. Það sjá allir, hversu sjálfsagt er að nota raforkusjóðinn til slíkra framkvæmda. Ég hygg, að ekki hafi þó verið varið miklu fé til vaxtagreiðslu, en í það munu þó vera komnar 2 millj. kr. og fer mjög vaxandi, og er því mjög aðkallandi, að á þessu þ. finnist úrlausn þessara mála.

Þegar þessi mál voru til umr. á síðasta þ., lýsti ég því yfir, að ég fyrir mitt leyti gæti ekki sætt mig við eitt ákvæðið í frv. meiri hl. n., en það var, að verðið á rafmagni skyldi vera jafnt alls staðar á landinu. Þá hefði orðið að hækka gjaldið hjá þeim, sem búa við góða aðstöðu. Eftir að ég hafði kynnt mér frv. þetta, var þess óskað a. m. k. af minni hálfu, að fundinn yrði samkomulagsgrundvöllur í málinu, svo að hægt yrði að komast að einhverri lausn á málinu, sem allir gætu unað við, og féllst ég á samvinnu um þetta.

Ég þarf nú ekki að lýsa frv., því að frsm. hefur lýst, hvað á milli ber.

Þetta er að mínu áliti frv., sem hægt er að ræða og finna eitthvað að, en frv. þetta er borið þannig fram, að allir geti við unað.

Hv. 1. þm. Árn., sem er form. raforkun. ríkisins, lagði á það höfuðáherzlu, að afskipti ríkisvaldsins yrðu á þann hátt, að ríkið hefði yfirstjórn þessara mála á hendi sinni og fengi þar með einkasöluaðstöðu. Önnur leiðin er sú, að ríkið hefur íhlutun án þess að eiga og selja vöruna. Ég held, að bezta lausnin verði sú, að ríkissjóður annist heildsölu á rafmagni, en einstök héruð eða sveitarfélög sjái hins vegar um dreifinguna. Sumir telja aftur á móti, að það verði ómögulegt, að ríkið hafi nokkur afskipti af sölunni. Af þessu sést, að þetta er óútkljáð og umdeilt mál. Ég vil þó beina því til hv. n., hvort rétt sé að einskorða eða hafa ekki neina heimild eins og í 1. gr. um einkarafveitur. Ég tel þó, að sú heimild, sem veitt er, sé rétt, því að ég get vel hugsað mér, að þótt ríkið vilji ekki ráðast í framkvæmdir, þá geti vel verið, að viðkomandi bær vilji leggja út í þær, og þess vegna gæti það verið gott að hafa eitthvert ákvæði, er lýtur að þessu, því að þetta einkaréttarákvæði ríkisins gæti torveldað illilega framkvæmdir annarra.

Þá kem ég að þeirri hlið málsins, er hv. 1. þm. Árn. ræddi mest um. En það er, hve langt á að fara út í það að leiða rafmagn út í hinar strjálu byggðir landsins. Ég get vel fallizt á það, að starf og framleiðsla íbúa strjálbýlisins séu mikilsverð fyrir þjóðarheildina og afkoma þjóðarinnar byggist að miklu leyti á þessu, en að það endilega þurfi að þýða, að leiða skuli rafmagn út á hvert annes og inn í hvern afdal, get ég ómögulega skilið. Fyrir því eru takmörk og mér liggur við að segja ákveðin takmörk, hve langt er hægt að leiða rafmagnið út í hinar strjálu byggðir, en sjálfsagt er að leiða það um allar hinar frjósamari byggðir.

Ég drap á það í fyrra í umr. um þetta mál, að gerð hefði verið kostnaðaráætlun um rafveitu fyrir Mývatnssveit. Sú sveit hefur, sem kunnugt er, góð skilyrði til slíks, er nálægt orkuveri, sem reist var fyrir styrjöldina á lágu verði, og Mývatnssveit er þéttbýl. Samkv. kostnaðaráætluninni varð ríkið að borga allan stofnkostnað og rúmlega það (160% ), til þess að hægt væri að reka rafveituna, og það jafnvel þótt um gamalt orkuver væri að ræða. Þetta sýnir nógu greinilega, hversu erfitt er að koma á rafveitum í strjálbýli, þar sem aðstaða er erfiðari. Þetta er að vísu viðkvæmt mál og verður ekki leyst nema allir aðilar sýni fullan skilning, en ekki einstrengingslegt sjónarmið.

Í frv. er gert ráð fyrir tvenns konar héraðsrafveitum. Annars vegar eru héraðsrafveitur, sem reknar eru af sjálfum héruðunum, og hins vegar héraðsrafveitur, sem ríkið rekur. En mér finnst eðlilegast, að ríkið eigi orkuverin, en héruðin reki þau. Þessum héraðsrafveitum er gert mishátt undir höfði, því að hjá þeim, sem ríkið rekur, verður kostnaðarverð og rekstur greiddur að einhverju leyti af ríkinu. Mér finnst því réttast, að brúað verði djúpið á milli héraða- og ríkisrafveitna, og heppilegast sé, að héruðin reki sjálf viðkomandi rafveitur.

Þá vil ég minnast á meðferð raforkusjóðs. Það er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram 2 millj. kr. árlega. Um þessa upphæð má deila. Sumum finnst hún of lág, öðrum of há. Þessa hlið málsins bið ég hv. n. að athuga, því að enda þótt ríkissjóður geti greitt þessa upphæð nú, er ekki víst, að hagur hans verði ávallt nægilega góður til þess. Þessar 2 millj. eru ekki það eina, sem ríkið leggur til þessara mála, því að auk þeirra skal styrkja verulega héraðarafveitubyggingar. — Þá orkar það tvímælis, hvort einungis á að veita lán úr þessum sjóði eða einnig styrki, og bið ég n. að athuga það einnig.

Þar sem frv. þetta er aðeins komið fram vegna nauðsynjar og mikilvægis þessa máls, vil ég mælast til, að það verði afgr. á þessu þingi, því að ég legg það fram í þeirri von, að það ráði verulega bót á málum þessum.