09.11.1945
Neðri deild: 29. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1052 í B-deild Alþingistíðinda. (1759)

60. mál, raforkulög

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, sem mig langar til að segja við þessa umr. og að nokkru leyti vegna þess, sem fram hefur komið. Ég skal játa það, að ég er ekki fræðimaður til þess að ræða um þetta mál eins og vert væri. En um eitt atriði, sem borið hefur á góma, vildi ég leggja orð í belg.

Það eru skiptar skoðanir hv. frsm. og hæstv. samgmrh. um héraðaveitur almennt. Ég vildi biðja hv. n. að athuga þetta mál frá sjónarmiði okkar, sem búum í strjálbýlinu. Óttast ég mjög, að með því skipulagi, sem ætlazt er til, að verði á þessu, þá sé nokkur hætta á því, að þeir kaupstaðir og kauptún, sem fjölmennust eru og því auðvelt að láta rafveitur bera sig í, fái leyfi eða verði teknir alveg sérstaklega út úr. Samkv. ákvæðum 3. kafla verður ráðh. að veita einkarétt fyrir viss orkusvæði, sem oft og einatt geta verið kauptún eða kaupstaður. Færi svo, er það bersýnilegt, að sveitirnar í nágrenninu yrði ríkissjóður að taka upp á sína arma, því að þær mundu eðlilega bera sig miklu verr fjárhagslega. Og gerum ráð fyrir, að ríkið leggi fram fé til virkjunarinnar, þá er ávallt nokkur hætta á því, að orkan til þessara staða mundi verða nokkuð dýrari en hún þyrfti að vera. Ég tel eðlilegt, að þegar þessi mál verða leyst, þá sé leitazt við, eftir því sem hægt er, að héraðsbúar, hvort sem þeir eru í sveit eða kaupstað, beri byrðarnar hver með öðrum, eftir því sem fært þykir að leiða raforkuna. Ég óttast, að með þessari skipan geti að því leitt, að sveitirnar fái rafmagn miklu síðar en annars þyrfti að vera. Hitt tel ég aftur eðlilegt, að meðan verið er að koma þessu í kring, þá verði t. d. kaupstöðum eða kauptúnum leyft til bráðabirgða að hafa orkuveitur á tilteknum svæðum, en hitt sé samt hugsað, að veitan verði fyrir héraðið allt síðar meir. Þá krafta, sem þarna eru og þurfa á raforku að halda, þarf að sameina til eins öflugra átaka og mögulegt er, en ekki deila þeim í tvo eða fleiri hluta. Ég vildi mælast til, að hv. n. taki þetta nánar til athugunar.

Ég álít það fjarri lagi, þótt þessir styrkir séu veittir, þá sé horfið að því, að allt verði að héraðaveitum ríkisins. Ég býst fastlega við því, að ýmsir staðir sækist eftir því að hafa sínar eigin orkuveitur út af fyrir sig.