23.11.1945
Neðri deild: 38. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (1774)

60. mál, raforkulög

Sigurður Þórðarson:

Hæstv. samgmrh. hélt fast við það ákvæði, að sýslusjóðirnir skyldu greiða 1/3 af stofnkostnaði rafveitnanna, og benti á heimtaugargjöldin í því sambandi. En þar er ólíku saman að jafna, og það vænti ég, að hæstv. ráðh. viti.

Það eru ekki neinir auðmenn, sem eru útverðir íslenzks landbúnaðar og berjast þar erfiðri lífsbaráttu. Það er óhugsandi, að nokkuð verulegt fé fáist á þennan hátt, og segi ég það ekki af því, að mér sé ekki ljóst, að hæstv. ráðh. og allir þm. vita þetta. Hér er um það að ræða að leggja rafmagn út um landið til að hamla því, að sveitirnar leggist í auðn. Alþ. hefur sjálft markað leiðina í þessu máli, eins og heyra mátti af því, sem hæstv. ráðh. las hér upp, þótt hann vilji nú víkja undan þeirri ákvörðun á þeim grundvelli, að mþn. hafi ekki bent á leiðir til fjáröflunar. En ég vil benda á það, að samkv. þessu frv. eru ekki farnar aðrar leiðir en þær, sem mþn. benti á. Þess vegna er óhugsandi að víkja sér undan þessu á þeim grundvelli. Enginn hefur enn þá borið fram gild rök fyrir því, að þessar framkvæmdir geti ekki borið sig í heild. Rafmagnið skapar óþrjótandi möguleika. Og jafnvel þótt hallarekstur yrði í fyrstu, þá er það svo um fleira, t. d. dómgæzlu o. fl. Á þetta mál ber að líta frá sjónarmiði alþjóðar, og þótt tölur kynnu í fyrstu að sýna halla, þá yrði samt sparnaður, þegar á allt er litið og metin eru lífsgæðin og framfaramöguleikarnir, sem þessu fylgja. Jafnframt er á þennan hátt hægt að afstýra þeim þjóðarvoða, sem stafar af því, ef sveitirnar leggjast í auðn. Ég hygg, að ómögulegt sé á nokkurn hátt að mæla því bót, að Alþ. skipti um skoðun í þessu máli, og vonbrigði manna yrðu mikil, ef svo færi. — Ég skal svo ekki orðlengja hér frekar; nema sérstakt tilefni gefist.