04.12.1945
Neðri deild: 48. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1069 í B-deild Alþingistíðinda. (1787)

60. mál, raforkulög

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég hef ekki við meðferð þessa máls blandað mér í umr. eða tekið þátt í afgreiðslu þess að öðru leyti en því, að ég hef tekið þátt í atkvgr. við 2. umr. En mér varð það ljóst strax í fyrra, að þá yrði úr því skorið, þegar Andakílsárvirkjunin kæmi til meðferðar, hvernig meiri hl. lá hér á Alþ. varðandi þá stefnu, sem tekin var í frv., sem mþn. í raforkumálum flutti og hér var til meðferðar á síðasta Alþ. Nú hefði það náttúrlega verið eðlilegt og í samræmi við vilja þess meiri hl., sem að því stóð, að koma því frv., eins og það var úr garði gert, í það horf, sem var, og halda svo áfram á sömu braut. En það kom glöggt í ljós við 2. umr. þessa máls, að það voru drepnar allar þær till., sem voru í samræmi við stefnu þess frv., er mþn. hafði flutt og lagt til í tveimur höfuðatriðum, sem eru annars vegar það, að ríkið hafi með þessi mál að gera sem allra mest, og að hinu leytinu hitt, að rafmagnið yrði selt á sama verði hvarvetna á landinu. Nú hafa þær brtt. verið felldar hér, og gera má ráð fyrir því, að svo miklu leyti sem þær yrðu fluttar aftur, færi það á sömu leið með þær, og þess vegna gengur frv. fram, að brotin sé á bak aftur að miklu leyti sú stefna, sem lá til grundvallar fyrir okkar frv. Þar með er náttúrlega ekki úr því skorið, eða það vefengt, sem öllum má vera ljóst, að þrátt fyrir það, að frv. þetta, eins og það liggur fyrir, og ég legg til, að verði að l., er með því stigið mikilvægt spor í áttina til þess, að rafmagnsmálið komi til framkvæmda í okkar landi. En varðandi þessi atriðin, sem hér verður höfuðdeilan um, hvað snertir verðlag á rafmagninu og fjárframlög úr héruðunum, þá vil ég segja það, að mér er fyllilega ljóst, að þær framkvæmdir, eins og t. d. þjóðvegirnir og landssíminn, væru ekki komnar nærri því eins langt og þær eru, ef alltaf hefði átt að krefja ½ eða 1/3 af kostnaðinum frá héruðunum á móti ríkinu, og þó er þarna um, dýrar framkvæmdir að ræða; þar sem eru þjóðvegir og sími, og þó er hitt víst, að framkvæmdir í rafmagnsmálunum eru það miklu dýrari, að enn minni von er til þess, að héruðin, eins og horfir um þeirra hag, verði vaxin því að leggja fram það fé, sem með þarf, til þess að anna því framlagi, sem farið er fram á eins og frv. er, og jafnvel þó að brtt. iðnn. yrðu samþ. Ég hef lagt fram eða stend að 2 brtt., annarri með hv. 2. þm. Rang. á þskj. 213 um að færa framlög héraðsveitnanna úr ½ niður í 1/5, og sé ég, að hún hefur þó haft þau áhrif á iðnn., að hún hefur til samkomulags gert till. um að flytja hlutföllin til þannig, að í staðinn fyrir ½ skal koma 1/3, og er það mikið spor í rétta átt, þó að það að mínu áliti fullnægi engan veginn til að mæta þeirri þörf, sem um er að ræða.

Hin till. mín er á þskj. 216, og hafa 2 hv. þm. talað að nokkru leyti á móti henni. Sé ég því ástæðu til að fara um hana nokkrum orðum. Þessi till. er beinlínis bundin við það, að búið er að brjóta þá stefnu, sem fyrir okkur vakti í mþn. í raforkumálum. Hún er bundin við þær vonir, sem menn geta gert sér úti á landsbyggðinni um að fá raforkuna frá almenningsveitum, en það lítur víða illa út með það, og má búast við, að þeim þyki langt að bíða eftir þeirri vissu, sem þeir í öllu falli ættu að fá um það, hvernig stefnt er að því í raun og veru, að fyrr eða síðar leggist meira og minna afskekktar byggðir blátt áfram í eyði, vegna þess að rafmagnið kemur ekki þangað. Nú vil ég segja það, að vegna þess að þetta stendur þannig, vegna þess að það fæst ekki fram, að raforkuframkvæmdum verði hagað eins og lagt var til við 2. umr., að aðalraforkuveitan verði miðuð við 10 ára framkvæmd, er augljóst, að þeir, sem einhverju ráða, hafa, hvort sem það eru einstaklingar eða heil héruð, farið að brjótast í því að útvega sér þessi lífsþægindi, ef þess er nokkur kostur, og þegar þannig er í pottinn búið, finnst mér mjög ósanngjarnt af hinu opinbera valdi að vilja ekki rétta þessum mönnum þá hjálparhönd að veita þeim lán með sæmilegum kjörum, betri en hægt er að fá í almennum lánsstofnunum, til þess að sinna þessum framkvæmdum. Hv. frsm. iðnn. var að tala um, að þetta gæti gengið nokkuð langt, ef þyrfti að lána í þetta kannske 1½ millj. kr., en ég segi, að þó að það væri 2½ millj. eða 3½ millj. kr., sem færi í slíkar framkvæmdir, þá gæti það borgað sig, ef slíkar rafveitur væru gerðar þannig úr garði, að þær gætu sinnt því hlutverki heimilanna, sem til er ætlazt. Ég hef fengið bæði bréf og skeyti frá samtökum og frá hinum og þessum mönnum víðs vegar að af landinu um það, að þeim þætti ákaflega óhyggilegt, ef farið yrði inn á þá braut, sem hér er farið inn á, og það væri engin hjálp rétt til þeirra einstaklinga, sem eru að brjótast í því að beizla raforkuna sér og sínum heimilismönnum og sveitum til gagns. Það er gefinn hlutur, að það er gert nokkuð minna að þessu nú, en mun verða því meira, þegar séð er sú stefna, sem verður ofan á hér á Alþ., svo sem nú horfir. Þess vegna held ég, að það sé ekki til sérlega mikils mælzt, þó að farið sé fram á, að þessi till., sem fer fram á lán að 2/3 hlutum til slíkra einkastöðva, verði samþ. Það má segja, að það skipti ekki ákaflega miklu máli, hvort mín till. verður samþ. eða sú till., sem hefur verið flutt sem brtt. við hana, frá hv. 1. þm. Árn. og fleirum, en það er þó að athuga í því sambandi, að þó að ég fyrir mitt leyti gengi inn á það, að þetta væri bundið við vatnsvirkjanir, þá á ég erfitt með að samþ. hitt, að það sé eingöngu bundið við það, að það þurfi að vera utan þeirra svæða, sem áætlað er, að einhvern tíma komi sameiginleg virkjun á. Það er það, sem ég hef við þá till. að athuga, enda er það svo, að ég flutti mína till. án þess að hafa samráð við þá, sem þarna eiga hlut að máli, og þessir 2 meðnm. mínir í mþn. höfðu ekki neitt samráð við mig um þá brtt., sem þeir flytja við mína till. Þetta atriði tel ég, að ekki skipti öllu máli, hvort þetta er bundið við vatnsvirkjun eða fleira kæmi þar til greina, en tel aðalatriðið, þar sem um vatnsvirkjun er að ræða.

Hv. frsm. iðnn. var að tala um það, að það væri með till. ekki gert ráð fyrir neinni tryggingu fyrir þessum lánum. En það er nú fyrir því séð í þessu frv., sem hér liggur fyrir, að það þarf að setja reglugerð um ýmis atriði, sem þar eru ákveðin, og þar á meðal kæmi það að setja ákvæði í reglugerðina um, að tryggingar skyldi krafizt í þessu sambandi, því að sjálfsögðu verður að setja mikla tryggingu fyrir þessum lánum, enda till. ekki orðuð á annan hátt en þann, að hún er heimild til ráðh. til þess að veita slík lán þar, sem um er að ræða, að rafmagnseftirlit ríkisins álítur, að stöðvarnar séu svo vel gerðar, að það sé þorandi að lána út á þær. Þess vegna verð ég að segja það, að ég tel ekki, að það ætti að vera nokkur hætta, þó að þessi till. þeirra hluta vegna væri samþ., án þess að í hana væri sett, að það þyrfti að setja sérstaka tryggingu fyrir þessum lánum, því að það mundi hvaða ráðh. sem yfir þessum málum hefði að segja sjálfsagt taka þær tryggingar gildar, sem hann teldi öruggar fyrir slíkri lánsheimild.

Þá skal ég aðeins segja það að lokum, að mér sýnist brtt. iðnn. hin fyrsta vera til þess fallin að stefna málinu í hið verra horf, frá mínu sjónarmiði, heldur en er í frv., eins og það er nú, og það er náttúrlega eðlilegt, að hv. síðasti ræðumaður, sem gerði kröfu um það á sínum tíma að fá frekari upphæð frá ríkissjóði en var í frv. upphaflega, vilji, að það væri tekið til greina. En með því að fara út á enn víðara svið, eins og gert er með 1. brtt. n., fer að verða nokkuð lítið eftir, að því er snertir hina stærri kaupstaði, að þetta sé einkarekstur til handa ríkinu til þess að stofna og starfrækja veitur til almenningsþarfa, og þá er um leið komið lengra frá því, að það sé ríkisvaldið, sem hefur þetta með höndum og að því sé þá um leið ætlað að jafna á milli, eins og ætlazt var til með þeim till., sem við lögðum til í okkar frv. Ég mun þess vegna ekki geta léð þessari 1. brtt. mitt atkv. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þessar brtt., en vænti þess, eftir því sem á undan er gengið, að hv. þm. geti sýnt þá sanngirni að samþ. mína brtt. á þskj. 216, eða þá a. m. k. brtt., sem við hana er flutt á þskj. 232.