04.12.1945
Neðri deild: 48. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í B-deild Alþingistíðinda. (1789)
60. mál, raforkulög
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Ég þarf ekki að vera langorður um frv. og brtt. þær, sem hér liggja fyrir, ég vil aðeins láta í ljós ánægju mína yfir því, að iðnn. hefur orðið við þeim óskum, sem ég bar fram við síðustu umr., að taka upp þær 2 brtt., sem ég minntist á. Aðra þá að auka heimildina fyrir einstaklinga og sveitarfélög til virkjunar án samþykkis Alþ. upp í 2 þús. hestöfl, en hina um það, að gefa ríkisstj. heimild til að ábyrgjast 2/3 stofnkostnaðar fyrir héraðsveiturnar. Þessar 2 brtt. álít ég vera til bóta. Ábyrgðarheimildin kemur fram sem almenn heimild, og ættu þá að vera óþarfar þær þáltill., sem fram hafa verið bornar undanfarið um tímabundnar ábyrgðarheimildir, sem hafa verið öllu hærri en hér er farið fram á. En þetta tel ég, að ætti að duga sem almenn heimild fyrir ríkissjóð til að ábyrgjast lán fyrir héraðsveitur. En út af orðum, sem hv. þm. A.-Húnv. lét falla hér varðandi einkarétt ríkisins til virkjunarinnar, þá hef ég við fyrri umr. málsins látið í ljós, að ég er síður en svo á móti því, að þessi einkaréttur verði gerður eins víðtækur og tök eru á, aðeins verður að tryggja um leið, að sú einkaréttaraðstaða ríkissjóðs stöðvi ekki neins staðar framkvæmdir, sem rafveita ríkisins hefur ekki aðstöðu til að gera á hverjum tíma. Það er alveg vitað mál, að svo margar kröfur koma til rafveitu ríkisins á næstunni eða eftir að þessi l. hafa verið samþ., að það verður hvergi nærri hægt að fullnægja þeim öllum undireins. Það geta verið margir, sem vildu gera hjá sér ráðstafanir til að bæta úr brýnustu þörf, og ég tel, að það sé gert með brtt. þeim, sem iðnn. hefur borið hér fram, að ráðh. sé heimilt að leyfa orkuver allt upp í 2 þús. hestöfl. Ég vil í þessu sambandi láta koma fram, að mér hefur borizt frá rafmagnsstjóranum í Reykjavík mjög ýtarleg umsögn um þetta mál, þar sem hann lætur í ljós nokkurn vafa um það, meira að segja eins og nú er frá gengið, að undanþáguheimildin frá einkarétti rafveitu ríkisins sé nægilega rúm. Hann segir svo í sínu bréfi : „Væru lögin um raforkuvirki og vatnalögin látin halda sér óbreytt, yrðu rafveitur ríkisins hliðstæðar héraðsveitum gagnvart lögunum um raforkuvirki, en gætu haft forgang hvarvetna eftir vatnalögunum eftir ákvörðun ráðherra. Auk þess yrðu rafveitur ríkisins fljótt svo sterkar vegna miklu meiri fjárhagsgetu sinnar en einstakar héraðsveitur geta sýnt og svo af því, að rafveitur ríkisins koma til að starfa í miklu stærri stíl með margar héraðsveitur víðs vegar í landinu. Er því sérstakur einkaréttur til handa rafveitum ríkisins umfram núverandi löggjöf algerlega óþarfur. Samkeppni milli einstakra orkuveitna kemur hvort sem er ekki til greina, því að lögin ætlast til þess, að ráðherra setji hverri veitu slík takmörk, að hagkvæmt skipulag náist frá því sjónarmiði. En ef nú þykir nauðsyn til bera að veita rafveitu ríkisins slíkan forrétt sem í frumvarpinu felst, þá er nauðsynlegt að sjá um það, að ekki tefjist þær aukningar og framkvæmdir, sem kaupstaðir, kauptún og sýslufélög, sem nú reka héraðsveitur ásamt orkuvinnslu, hafa með höndum eða í fullum undirbúningi. En fyrir því er ekki séð í frumvarpinu. Þar er þessum aðilum aðeins leyft að reka orkuverin eins og þau eru. Þyrfti því annaðhvort að fela rafveitum ríkisins það sérstaklega að annast um þessar aukningar, svo að fullnægt verði þörfum, sem þessir aðilar eru að vinna að að leysa úr, eða að heimila þeim að gera það sjálfum.“
Eins og ég sagði, les ég þetta ekki upp til þess að fara að mæla fyrir því að draga meira úr einkaréttarákvæði frv. til handa ríkissjóði. Ég les þetta aðeins til þess að sýna það, að jafnvel rafmagnsstjórinn í Reykjavík, sem er allra manna kunnugastur þessum málum, dregur þó mjög í vafa, að það sé gerlegt, á því stigi, sem málið er nú, að reyra þetta svo fast, að ekki sé smuga fyrir stærri kaupstaði eða einstaklinga til þess að afla sér rafmagns, meðan ríkisrafveitan er ekki fær um að fullnægja þörfinni. Eins og ég sagði, tel ég, að með þeim breyt., sem gerðar hafa verið við 1. gr., sé þetta einmitt opnað það nægilega, að ekki þurfi að reka sig á annmarka, sem rafmagnsstjórinn í Reykjavík gerir ráð fyrir, að annars mundu verða á þessu, og það verður náttúrlega að tryggja. Hins vegar álít ég, að undanþágur frá þessum einkarétti verði að vera í samræmi við það heildarplan, sem væntanlegur raforkumálastjóri ríkisins vinnur eftir og veitir undanþágur samkvæmt.
Ég tel svo ekki ástæðu til að fara miklu lengra út í þessar umr., ég tel, að frv. taki stórum breyt. til batnaðar í þessari d. við umr., ef þær till. verða samþ., sem iðnn. nú ber fram og ég mælti með.
Hins vegar tel ég það hæpið að ýta undir smástöðvabyggingar eins og till. liggur hér frammi um, a. m. k. eins og gert er í brtt. á þskj. 216, því að það er alveg gefið mál, að ef verið er að ýta undir einkastöðvabyggingar á þeim stöðum, þar sem möguleikar eru til að koma á allsherjar sameiginlegri veitu, þá verður það til þess að tefja þá framkvæmd, og til þess geri ég ekki ráð fyrir, að till. sé fram borin. En hins vegar viðurkenni ég, að í mörgum tilfellum verður á næstu árum að gera bráðabirgðaúrbót og bráðabirgðalausn, vegna þess að ekki er hægt að sinna í svipinn öllum verkefnum, sem kalla að, og á hvern hátt það yrði gert, er mál út af fyrir sig, sem má „dispútera“, hvort heima á í þessu frv. Ég tel, að þær bráðabirgðaráðstafanir mætti gera með öðru frv. og á annan hátt. Ég vænti svo, að hv. d. sjái sér fært að afgr. málið eins og hv. iðnn. leggur til, og tel ég þá, að það sé eftir atvikum svo frá málinu gengið, að ekki megi einasta vel við una, heldur megi á þeim grundvelli hefja stórkostlegar framkvæmdir í náinni framtíð til þess að hrinda þessu áhugamáli allrar þjóðarinnar verulegan spöl áleiðis til úrlausnar.