14.12.1945
Efri deild: 49. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1086 í B-deild Alþingistíðinda. (1811)

60. mál, raforkulög

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur nú fyrir, hefur verið afgr. í Nd. Það var í d. í fyrra og var þar rætt, án þess að það yrði afgreitt. Eins og hv. þm. muna, var skipuð mþn. fyrir 2 árum til að gera till. um að veita rafmagni út um byggðir landsins og hvernig greiða skyldi þann kostnað. Meiri hl. n. skilaði áliti í haust, er leið, en minni hl. n. var fjarverandi og gat ekki tekið þátt í afgreiðslu málsins. En minni hl. var ekki samþykkur meiri hl. og hafði unnið að till. sínum í samráði við rafmagnseftirlit ríkisins. Eftir beiðni minni hélt rafmagnseftirlitið áfram athugunum sínum, og síðari hluta sumars 1944 lágu fyrir till. frá rafmagnseftirlitinu. Þetta frv. er nú þær till., sem rafmagnseftirlitið lagði fram, með lítilvægum breytingum frá hálfu meiri hl. Raunar virðist mér óþarfi að fara mörgum orðum um frv.

Frv. þetta, ef að l. verður, veitir ríkissjóði einkarétt á að vinna og dreifa raforkunni út um byggðir landsins, eins og kveður á í 1. gr. Til þess að slíkt megi verða, er tekið fram í II. kafla frv., hvernig meðferð málsins skuli hagað og að settar verði á stofn rafveitur ríkisins til að sinna þessu verkefni. Þær fá einkaleyfi ríkisins til þessara framkvæmda, að virkja, leggja línu og að dreifa raforkunni á þá staði, þar sem héraðsrafveiturnar vilja ekki taka það í sínar hendur. Gangur málsins sé þessi: Ríkisrafveiturnar taki að sér dreifingu raforkunnar til héraðsrafveitnanna, en þar taki þær við og dreifi henni innan sinna héraða.

III. kafli er um héraðsrafveitur. Viðkomandi héraðsrafveita fær einkaleyfi til að dreifa raforkunni um héraðið, og ekki er gert ráð fyrir, að þar, sem þessar héraðsrafveitur starfa, komi til neinn styrkur úr ríkissjóði. Hins vegar er gert ráð fyrir, að ríkissjóði sé heimilt að ábyrgjast lán fyrir héraðsrafveiturnar. En þegar héraðsrafveiturnar eru svo stórar, að héruðin treysta sér ekki til að standa undir þeim, er ráðgert, að héraðsrafveitur ríkisins komi til sem sérstök stofnun, og annast þær þá dreifinguna frá þeim. Það má gera ráð fyrir, að í þeim héruðum, sem strjálbýl eru, mundi venjulegur stofnkostnaður verða þeim um megn. Þá er ætlazt til, að ríkissjóður greiði 3/4 stofnkostnaðarins, en héruðin 1/4. Verður tekinn hæfilegur hluti til vaxtagreiðslu, svo að venjuleg rafveitugjöld nægi. Þessi fjárveiting verður að greiðast úr ríkissjóði, en afskriftir þessar verða að ákveðast hverju sinni og koma þá eins og venjuleg rekstrargjöld.

V. kafli er um raforkusjóð. Hann var stofnaður fyrir nokkrum árum og á nú á annan tug millj. kr. Ætlað er, að hann fái nokkra fjárupphæð frá ríkissjóði árlega, eða 2 millj. kr. Hann tekur einnig vexti af fé því, sem hann lánar. Sjóðnum er ætlað að veita lán allt að 30 ára til að koma upp tilteknum mannvirkjum fyrir rafveitur ríkisins. Lán þessi mega vera með allt að 2½% lægri vöxtum en víxilforvextir Landsbanka Íslands. Sömuleiðis er gert ráð fyrir rekstrarlánum til bráðabirgða til skemmri tíma, á meðan neytendurnir eru ekki komnir upp á það að nota raforkuna til fulls, því að það hefur sýnt sig, að þótt rekstrarhalli sé fyrstu árin, þá getur orðið rekstrarhagnaður, er frá líður. Að athuguðu máli hefur sú leið verið valin að láta sjóðinn lána fé til rafvirkjunarframkvæmda með lágum vöxtum. Það fé, sem veitt er úr raforkusjóði, er þannig í láns- en ekki styrkjaformi. Lánin veitast ýmist af Alþ. eða ráðh., og getur nánar um það í frv. Er þar tekið fram, hvernig skuli með fara í hvert sinn.

VI. kafli er um rafmagnseftirlit ríkisins, og er hann svo að segja óbreyttur eins og hann kom frá rafmagnseftirliti ríkisins. — VII. kafli er um stjórn raforkumála, og er það nýr liður.

Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þýðingu þessa máls. Það vita allir, hvaða þýðingu það hefur, að menn geti fengið raforku út um byggðir landsins bæði til þæginda fyrir þá, sem þar búa, og til iðnrekstrar og atvinnurekstrar fyrir ýmiss konar fyrirtæki. Hvort tveggja er nauðsynlegt og aðkallandi og þess vegna áríðandi, að gert verði allt, sem hægt er, til þess að ýta eftir, að þetta verði sem fyrst. Hins vegar er því ekki að leyna, að það er um mikla erfiðleika að ræða, sem yfirstíga þarf, og sérstaklega þá það, að þessar framkvæmdir allar eru gífurlega kostnaðarsamar, og verður þá að reyna að haga svo framkvæmdum, að ekki yfirstígi greiðslugetu þeirra aðila, sem þar eiga hlut að máli, hvorki viðkomandi héraða, einstaklinga, sem þar eiga hlut að máli, eða þá heldur ríkissjóðs að þeim hluta, sem honum er ætlað að annast þessar greiðslur.

Einn megineðlismunur á þessu frv. og því, sem lagt var fram í fyrra, er sá, að hér er ekki gert ráð fyrir, að rafmagnið verði selt sama verði hvar sem er á landinu, heldur verði því að ráða bæði ýmis teknisk fyrirkomulagsatriði, eins og það, hvernig t. d. rafmagnsins er aflað, sem getur í mörgum tilfellum haft áhrif á rafmagnsverð, og í öðru lagi, að nokkur hluti hins mikla dreifingarkostnaðar sé tekinn af viðkomandi héraði sjálfu.

Ég sé svo ekki, a. m. k. ekki að svo stöddu máli, nauðsyn að fara um þetta mál fleiri orðum. Ég vænti þess, að d. taki málið til skjótrar og góðrar fyrirgreiðslu, þannig að þetta mál megi verða afgr. á þessu þingi. Ég skal aðeins taka fram, að þó nokkur skoðanamunur var í upphafi um afgreiðslu þess bæði innan raforkumálan. sjálfrar og milli ýmissa manna, sem kringum n. stóðu, en þó tel ég, að eins og málið hefur verið afgr. frá Nd., þá sé sá ágreiningur, sem er, mjög lítill, svo að ég segi ekki alveg hverfandi. Ég vænti því, að takast megi að koma málinu einnig gegnum þessa hv. d., svo að um það verði gott samkomulag.

Ég leyfi mér svo að leggja til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til iðnn., sem hafði með málið að gera í Nd.