14.12.1945
Efri deild: 49. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1090 í B-deild Alþingistíðinda. (1814)

60. mál, raforkulög

Gísli Jónsson:

Ég þakka fyrir þessar upplýsingar, sem eru mér ekki svo lítill leiðarvísir í málinu við nefndarstarfið, en ég vil aðeins í sambandi við það leyfa mér að benda á, að mér virðist þurfa að setja mjög ströng ákvæði í l., sem fyrirbyggi þetta, sem hæstv. ráðh. sagði, að sé málinu mest til tjóns, um hreppapólitík. Ég vil benda á, að á síðasta þingi voru samþ. l. um raforkuvirkjanir, sem mér skilst, að eigi að framkvæma samkv. þessu frv.. þegar það er orðið að l., og mér skilst, að ef þessar virkjanir féllu undir 4. kafla, þá yrði að gera sérstakar fjárhagslegar ráðstafanir til þess að hægt væri að gera það. Ég hygg, að það verði nú mjög erfitt að fyrirbyggja það, sem hæstv. ráðh. talaði um. Það má að vísu marka einhverjar línur, en bæði er það, að Alþ. getur breytt þeim lagaákvæðum, og mér er ljóst, að það verður farið í harða sókn, og það mjög harða sókn, í þessu máli. Ég vil bara benda hæstv. ráðh á það, að hvenær sem teknar eru stórar fjárfúlgur úr ríkissjóði til að byggja upp rafveitur, þar sem lagt er fram óafturkræft fé, eins og gert er í 4. kafla, þá er það lagt á alla þjóðina, einnig þá, sem ekki njóta þessara gæða, og íþyngir þeim til að geta komið þessum rafveitum á. Mér finnst þetta svo stórt atriði, að ef hæstv. ráðh. telur, að ekki megi komast inn í þetta hreppapólitík, eins og ég er sammála honum um, þá getur ekki komið til mála að koma á neinum héraðsrafveitum nema þeim, sem geta staðið undir sér samkv. 3. kafla, því að það mundi aldrei verða liðið, ef t. d. 2–4 millj. væru settar í eitthvert hérað á einu ári og það væri alveg öruggt, að þær kæmu ekki til baka, nema viðkomandi önnur héruð fengju tiltölulega sömu upphæð eða hlutfallslega sömu aðstöðu, vegna þess að þær mundu íþyngja þeim, sem ekki fá það. Við höfum séð það með vegi. Ég vil benda hæstv. ráðh. á það, að hér á þingi hefur verið mikil togstreita um það, hvort ekki ætti að skera niður aðra vegi jafnvel til að lokið yrði vegi í héraði, sem hafði þó aðra vegi fyrir þéttari en í þeim héruðum, sem þar átti að skera niður. Ég held því, að erfitt verði að tryggja, að ekki komist hér hreppapólitík að, svo framarlega sem ekki verða gerðar stórkostlegar breyt. á 4, kafla, svo að ég held, að það sé rétt að ræða þetta við 1. umr. Við vitum það, að nú er búið að leggja tvo vegi, sem mikið kosta, austur yfir fjall, og þá er samþ. á mjög óþinglegan hátt að leggja þangað þriðja veginn, sem ekki er búið að ljúka enn, og áður en hann er fullgerður, kemur nýtt lagafrv. um að setja 22 millj. í einn veg enn. Þetta er allt réttlætt með því, að það sé bráðnauðsynlegt að gera þetta. Ég er ekki að neita því. En þetta er ekki gert af því, að þessi héruð hafi ekki vegi og brýr, heldur af því að vegirnir og brýrnar duga ekki, af því að þessi héruð þurfa að stækka sín flutningatæki frá einu tonni og upp í 10 og 12 tonn. En það er ekki litið á það, að það eru til héruð, sem bíða eftir að komast inn í vegakerfi landsins og gætu notazt við hestvagna, en verða nú að reiða á klökkum. Ef á að fara svona með útkjálkahéruðin, þá er engin von, að þeir, sem eru fulltrúar fyrir þessi héruð, og þegnarnir í þessum héruðum vilji beygja sig undir þann beina kostnað, sem tekinn er úr ríkissjóði til að koma þessum framkvæmdum á. Hér er verið að gera þá langstærstu tilraun, sem gerð hefur verið, til að þurrka þessi héruð út og flytja íbúana þangað, sem hægt er að byggja rafveitur. Þetta er svo stórkostlegt mál, að við verðum að gera okkur ljóst, hvaða áhrif það getur haft. Þess vegna hef ég hreyft þessu hér.