14.03.1946
Efri deild: 84. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í B-deild Alþingistíðinda. (1832)

60. mál, raforkulög

Jónas Jónsson:

Þegar þetta stóra mál er að hverfa úr þessari deild, þá vil ég lýsa ánægju minni yfir því, að mikið hefur á unnizt í þessum málum á nokkrum árum. Rafmagnsmálinu hefur ekki verið sinnt fyrir landið í heild, fyrr en á sumarþingi 1942. Þá ber ég fram till. ásamt öðrum, sem hefur verið meginstefna í þessu síðan. Þá lögðum við til, að raforkan ætti að vera sameiginleg blessun allrar þjóðarinnar og að þeir í dreifbýlinu fengju rafmagnið svo ódýrt sem unnt væri. Það má segja, að sú till., sem Jón Þorláksson kom með, gengi í sömu átt, þótt annað form væri á henni, en þá hafði landið ekki tök á að fylgja þessum málum fram.

Þskj. mun hafa verið nr.19 þetta sumar, en nr. 25 eða 26 frá þm. Rang. um að stofna raforkusjóð. Síðar kom fram till. um að hækka þennan sjóð í 10 millj. kr. Þá var skipuð n. til að undirbúa málið, og má segja, að mikið hafi verið gert á þessu sumarþingi. Þessi n. hefur svo undirbúið málið í samráði við ráðh., og verður það bráðum samþ. hér. Og það er ósanngjarnt að ætla, að strax náist hið réttláta takmark, en svo mun þó fara, og hygg ég, að þessi áfangi sé stór þáttur í þessu mikla máli.