14.03.1946
Efri deild: 84. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
60. mál, raforkulög
Jónas Jónsson:
Mér finnst vel við eigandi samhliða þessu frv. að hressa ofurlítið upp á hv. alþm. með lítilfjörlegum sögulegum útskýringum.
Ég verð að segja, að ég hafði aldrei búizt við því, að svo mikill innfæddur Reykvíkingur sem hv. 6. þm. Reykv. mundi vantreysta þeirri merku bók um Eldeyjar-Hjalta og frásögn hans um rafmagnsmálin svo mjög sem hér kemur fram. Ég hygg, að það sé hafið yfir allar deilur, að Sigurður Jónasson hafði um nokkra stund meirihlutafylgi til að verða borgarstjóri í bænum upp á þessi mál, sem var nógu stórt til að ráða aldahvörfum, og beita sér fyrir að taka Sogið þeim tökum, sem síðar var gert. Það er svo mikil rómantík utan um þetta mál og þessar sviptingar, sem urðu til þess, að þessi merki lögfræðingur fékk ekki þá ánægju að verða borgarstjóri, að það kom m. a. til greina að flytja menn á spítala og að margs konar meinlegar aðgerðir væru gerðar á þeim, en allt endaði þetta í því, sem var aðalatriðið og Hjalti virðist hafa mjög glatt sig yfir, að Reykjavík af fullum krafti, íhald, Framsókn og Alþfl. í sameiningu, fór að berjast fyrir virkjun Sogsins. Hitt gegnir nokkurri furðu um þann fræðimann, sem hefur gengið í gegnum sögu Alþ. í þessu merka máli, að það skuli hafa farið fram hjá honum, að Tryggvi Þórhallsson rauf þingið 1931 eingöngu út, af kjördæmaskipuninni. Það kann að vera, að hann hafi einhvern tíma í kosningaræðu minnzt á rafmagnsmál Reykjavíkur eins og eitthvert aukaatriði, en það er öllum kunnugt, ekki sízt þessum hv. þm., að þingið var eingöngu rofið út af kjördæmamálinu. Það er því alveg rangt að halda því fram, að Framsfl. hafi verið að fjandskapast við þetta mál, eins og kom líka síðar fram, því að fulltrúi Framsfl. í bæjarstj. gekk að þessu máli með fullri orku, og það veit borgarstjórinn, að varð að samkomulagi upp úr borgarstjóramálinu 1932, að Sogið skyldi verða virkjað, en það varð undirstaða ekki aðeins fyrir Reykjavík, heldur og fyrir allt Suðurland og fyrir landið allt. En af því að hv. 6. þm. Reykv. vill láta líta svo út, að framsóknarmenn hafi verið svo erfiðir í þessu máli, þá vil ég benda á, að þegar Jón Þorláksson fór að beita sér fyrir þessu máli með miklum dugnaði með lántöku í Svíþjóð, þá reyndist ekki auðvelt að fá peninga, en þá kom ríkisstj., sem ekki studdi Jón Þorláksson, til hjálpar og fékk honum til liðs hið fyrrv. borgarstjóraefni, og þeir unnu saman að þessu máli í Svíþjóð, og varð Jóni Þorlákssyni mikill stuðningur að þessari liðsemd. Sérstaklega mun hinn lögkæni borgarstjóri geta séð í þingtíðindunum, að ríkisábyrgð fylgdi, og við hana studdist Jón Þorláksson í Svíþjóð, og var hún veitt, þó að Sjálfstfl. væri í minni hl. og berðist fyrir þessu máli aðallega af því, að hann hafði forstöðu bæjarins, en Framsfl. var annar stjórnarfl. og gerði a. m. k. síður en svo tilraun til að hindra málið, heldur átti þátt í samþykkt þess og lét síðan vinna að framgangi þess með borgarstjóranum í Reykjavík.