14.03.1946
Efri deild: 84. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)
60. mál, raforkulög
Frsm. (Gísli Jónsson) :
Það er aðeins út af ræðu hv. 6. þm. Reykv. um, að þá fyrst geri þm. skyldu sína, þegar þeir leggja til, að þau mál nái ekki fram að ganga, sem þeir eru ekki ánægðir með. Hann telur einnig, að sama árangri mætti ná með því að samþ. allar þáltill. eins og með því að samþ. þetta frv. Ég er honum ósammála um bæði atriðin. Fyrir það fyrsta er engin sönnun fyrir því, að allar þáltill., sem liggja nú fyrir Alþ. um raforkumál, næðu fram að ganga nákvæmlega í sama formi og gert er ráð fyrir í l. Það er m. a. ekki víst, að þær komi á sama þingfundi, og ekki heldur víst, að allir hv. þm. sitji þann fund út, og getur þá atkvgr. raskazt fyrir það eitt, svo að það er næg ástæða fyrir að koma þessu máli fram. Ég vil enn fremur benda á, að ekki er hægt með þáltill. að ná tilgangi 3. tölul. 35. gr., og mundi því verða að bera fram enn fleiri till., ef ætti að ná tilgangi allra l., sérstaklega aðgangi að raforkusjóði, á sama hátt og gert er með þeirri gr., sem þar um ræðir, og það er eitt af meginatriðunum fyrir nauðsyn þess, að frv. verði samþ., en það er útilokað að tryggja þann rétt hér á þingi með þáltill.
Ég tel það vera þingmannsskyldu hvers þm., þegar hann sér, að um það er að velja að láta mál falla, sem hefur meira gott en illt, eða láta það ganga fram, þótt með göllum sé, að fylgja málinu, þó að hann fái það ekki að öllu leyti eins og hann vill. Ég undrast að heyra þessi orð frá hv. 6. þm. Reykv., sem ásamt mér stendur nú í þeirri aðstöðu hér á þingi að vera að gera út um alls konar mál, ekki á þann hátt, sem við viljum, heldur á þann hátt, sem hægt er að fá eins og við og annar aðili viljum. Hann veit ákaflega vel, að framkvæmdirnar í landinu yfirleitt standa og falla með því á þessum tímum, að hægt sé að semja um þau, og svo er hann að álasa mér sem frsm. fyrir, að ég skuli ekki leggja til, að þetta mál skuli drepið, af því að ekki sé hægt að fá allt í því, sem ég vil. Ég undrast yfir slíku ósamræmi í málflutningi.