08.10.1945
Neðri deild: 3. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í B-deild Alþingistíðinda. (191)

6. mál, togarakaup ríkisins

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að halda langa ræðu út af ræðu hv. 2. þm. S.-M. — Mér skilst, að hann sem formaður stjórnarandstöðunnar hafi löngun til að gagnrýna gerðir stj., en hann vantar tilfinnanlega kunnugleika á málunum og þekkingu á togaraútgerð. Höfuðmisskilningurinn í ræðu þessa þm. lá í því, að hann taldi, að ekki hefði verið nægilega athugað fyrirfram, hvaða gerð togara væri okkur heppilegust. Þetta er ekki rétt. Öll stríðsárin hafa útgerðarmenn verið að athuga þetta. Samkeppni hefur verið látin fram fara um heppilegasta togarann. Það var einungis endanleg niðurstaða, sem ríkisstj. vildi fá, enda reyndist það svo að það tók ekki nema 10 daga að fá einróma niðurstöðu um þetta. Slíkt hefði verið óframkvæmanlegt, ef þetta hefði ekki verið athugað fyrr.

Ég er því sammála, að ekki sé ástæða til að ræða hér, hvort okkur muni henta betur diesel- eða gufutogarar, en ég get getið þess, að reynsla Breta mun vera sú, að dieseltogararnir séu ekki betri. Sá maður íslenzkur, sem dómbærastur mun um þetta, telur, að það væri allt annað að ætla að byggja upp allan togaraflotann með eintómum dieseltogurum en þótt fengið sé eitt til tvö skip til reynslu. En um þetta mun bezt að hafa sem fæst orð og láta þá, sem betur vita, deila um það.

Ég vil algerlega vísa á bug þeim ummælum hv. 2. þm. S.-M., að þetta mál hafi verið illa undirbúið. Það er líka misskilningur, að hér sé um að ræða áþekk skip og hér hafa gerzt. Þetta eru stærri og að öllu fullkomnari skip. Þá er það auðvitað ekki rétt hjá hv. þm., að ríkisstj. hafi átt þess kost að afla tilboða og leggja þau svo fyrir kaupendur. Við urðum að ákveða þetta fyrir vissan tíma, eða fyrir 7. sept. Það er og athugandi, að allar tafir í þessu máli ganga út yfir okkur sjálfa. Við urðum að hrökkva eða stökkva, og ég tel það tvímælalaust gæfuspor, sem stigið hefur verið og að þetta var gert nógu fljótt.