26.03.1946
Efri deild: 92. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (1931)

126. mál, vitagjald

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Þetta frv. er flutt fyrst í Nd. og samþ. þar án breyt. Efnið er ekki margbrotið. Það er lagt til í frv., að í stað þess að borga vitagjald af skipum með fullkomna gangvél, eins og nú er, verði fyrir hvert skip, sem er 5 smálestir brúttó eða stærra og tekur höfn á Íslandi eða er haldið út frá landinu, skylt að greiða vitagjald 1 kr. af hverri nettó-smálest. Það þarf ekki fleiri orð um þetta frv. Ég tel sjálfsagt, að það verði samþ.