28.03.1946
Efri deild: 94. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (1933)
126. mál, vitagjald
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Fjhn. hefur gert breyt. við frv. það, er hér liggur fyrir. En hún er einvörðungu í því fólgin, að 2. frvgr. er skipt í tvær gr. Þykir fara betur á, að ákvæðið um, að lög þessi öðlist þegar gildi, sé í sérstakri gr., og þykir enda fara betur í l. Annað er það ekki, og má ekki líta á breyt. n. sem stórvægilega. M. ö. o., það verða aðeins þrjár gr., sem felast í frv.
Ég vildi aðeins láta þess getið, er nú hef ég sagt, áður en til atkvgr. kemur.