04.12.1945
Neðri deild: 48. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (1954)
28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda
Sigfús Sigurhjartarson:
Herra forseti. Ég sé, að hv. frsm. menntmn. er ekki mættur á fundi, og vildi því aðeins vekja athygli á brtt. á þskj. 273, sem menntmn. flytur. Það er raunar óþarft að lýsa þessari brtt. öllu nánar en gert var hér við 2. umr. málsins, þar sem þessi brtt. var boðuð, en hún er í því fólgin, að úr 4. gr. frv. verði numin þau ákvæði, sem þar standa nú, að aðeins próf úr bóknámsdeild veiti rétt til inngöngu í menntaskóla og aðra sambærilega skóla. Þetta sýnist óþarft að taka fram þarna. Þetta á heima í l. um menntaskóla, alveg eins og um aðra skóla er ákveðið í l. um þá, hvaða próf nægi til inngöngu í þá.
Um brtt. hv. þm. A.-Sk. skal ég vera fáorður. Hún er efnislega sú sama, sem felld var við 2. umr, málsins, en með þeirri breyt., að nú þurfi samþykki fræðslumálastj. til þess, að veitt verði undanþága frá fræðsluskyldu, sem í frv. þessu er gert ráð fyrir, að bætist við frá því, sem nú er. Ég vil aðeins vekja athygli á því, að þetta kerfi, sem lagt er til hér, að lögfest verði, byggir beinlínis á því, að skólaskyldan nái til 15 ára aldurs. En hins vegar er menntmn. það ljóst, að slíkt er ekki framkvæmanlegt í einu vetfangi, og þess vegna var bætt við 11. gr. frv., þar sem ákveðið er, að l. komi til framkvæmda á árunum 1946–1952. Þessi frestur er því til stefnu til þess að koma því í lag, sem þarf að koma í lag, áður en l. koma til fullrar framkvæmdar, og virðist það vera alveg fullnægjandi.