20.02.1946
Efri deild: 68. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1146 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)

28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda

Frsm. meiri hl. (Kristinn Andrésson) :

Herra forseti. Frv. þetta er samið af mþn. í skólamálum, sem skipuð var 30. júní 1943 af þáverandi menntmrh. samkv. þingsályktun. En n. fékk það verkefni að rannsaka kennslu- og uppeldismál þjóðarinnar og gera till. um skipun þeirra. Í mþn. áttu þessir menn sæti : Jakob Kristinsson þáverandi fræðslumálastjóri, Aðalbjörg Sigurðardóttir frú, Kristinn Ármannsson, Ásmundur Guðmundsson, Sigfús Sigurhjartarson og Ingimar Jónsson. Eftir að Jakob Kristinsson lét af störfum og flutti burt, tók Helgi Elíasson sæti hans í nefndinni.

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er einn þáttur í heildarkerfi, sem mþn. gerir till. um, og er þegar komið fram í Nd. frv. um barnafræðslu, sem er einn liður í fyrirhugaðri skipan þessara mála. Eins og kunnugt er, hefur það fyrirkomulag, sem ríkt hefur, verið miðað við einstaka skóla og skólaflokka, og hefur það einatt reynzt bagalegt og skapað erfiðleika fyrir nemendur. T. d. hafa gagnfræðaskólar og héraðsskólar starfað eftir ósamhljóða reglugerð og þar af leiðandi veitt misjafnlega hagkvæman undirbúning undir framhaldsnám. Með þessu frv. er gerð tilraun til að tengja saman og samræma alla skóla í landinu, allt frá barnaskólunum til háskólans. Eins og tekið er fram í 2. gr. frv., skiptist skólakerfið í 4 stig, barnafræðslustig, gagnfræðastig, menntaskóla- og sérskólastig og háskólastig. Á barnafræðslustiginu eru barnaskólar frá 7 til 13 ára, eða einu ári skemur en nú er. Þá tekur við gagnfræðastigið, en á því stigi eru 3 tegundir skóla, unglingaskólar með 2 ára námi, þá miðskólar með 3 ára námi og gagnfræðaskólar með 4 ára námi. Tveir fyrstu bekkir þessa stigs mundu jafngilda tveim fyrstu bekkjum í gagnfræðaskólum þeim, sem nú eru, en 3 vetra miðskóli mundi svara til þriggja neðstu bekkja gagnfræðaskóla. Námi í miðskólunum lýkur með landsprófi, miðskólaprófi, og er það ein mesta nýjung í þessum lögum. Þetta próf veitir rétt til inngöngu í sérskóla og menntaskóla með þeim takmörkunum, sem settar kunna að verða.

Eftir þessu frv. eru gagnfræðaskólarnir sjálfstæðir skólar. Það eru fjögurra ára skólar, nema í sveitum. Þar er fræðslumálastjórn heimilt að leyfa gagnfræðaskólum að veita aðeins tveggja ára fræðslu að loknu unglingaprófi. Úr gagnfræðaskólunum er ekki eins og áður var bein leið upp í menntaskólana, heldur frá miðskólunum. En burtfararpróf úr gagnfræðaskólum veitir rétt til náms í ýmsum sérskólum og til starfs við ýmsar opinberar stofnanir. Þriðja stigið er 4 ára menntaskólar með svipuðu fyrir komulagi og nú er. Fjórða stigið er háskólastig, þar er háskólinn, en til náms í honum þarf stúdentspróf, eins og nú er.

Þetta er í stórum dráttum bygging fræðslukerfisins, þ. e. 4 stig, sem taka við hvert af öðru. Ég vil þá víkja að helztu breytingum, sem þetta fyrirkomulag felur í sér frá því, sem nú er. Barnaskólarnir ná samkv. frv. yfir 6 aldursflokka í stað 7. Til þessa liggja sterk rök, og eru þau til færð í grg. Samkv. áliti uppeldisfræðinga er eðlilegra að miða námsskiptinguna við 13 ára aldur en 14 ára aldur, en á þessum árum er þroski unglinganna hvað örastur. Þótt gert sé ráð fyrir skólaskyldu barna frá 7 ára aldri, má búast við, að undanþágur verði veittar frá þessu ákvæði, a. m. k. í sveitum eða allt til 8–9 ára aldurs. Heimild er gefin til að koma á fót smábarnaskólum fyrir börn á aldrinum 5–7 ára. En önnur mikilvægasta breyt., sem frv. felur í sér, er lenging skólaskyldualdursins um eitt ár, eða frá 7 til 15 ára aldurs, í stað þess, að áður var þetta frá 7–14 ára aldurs. Í flestum menningarþjóðfélögum hefur reyndin orðið sú, að barnafræðslan nægir ekki til að fullnægja þeim kröfum, sem þjóðfélagið gerir til þegnanna. Hér er farið sem vægast í sakirnar, einungis bætt við einu ári.

Annað aðalnýmæli þessa frv. eru miðskólarnir og landsprófið. Í grg. fyrir frv. færir mþn. rök fyrir kostum þessa fyrirkomulags, og eru þau einkum þessi: Að ýmissa hluta vegna sé heppilegra að greina menntaskólana alveg frá gagnfræðaskólunum, þar sem of snemmt sé fyrir börn innan 14 ára aldurs og forráðamenn þeirra að kveða á um það, hvort þau skuli stunda menntaskólanám og jafnvel háskólanám eða meta hæfni þeirra til þess. Enn fremur, að með þessu fyrirkomulagi sé fleirum gefinn kostur á að fá stúdentsmenntun, þar eð áður var það ofvaxið fjárhag þorra manna að kosta börn til sex ára náms við menntaskóla í Reykjavík eða á Akureyri. Jafnframt er óeðlilegt, að sami skóli, sem velur nemendur í lærdómsdeild eftir samkeppnisprófi, annist sjálfur í gagnfræðabekkjum sínum undirbúning nokkurs hluta keppendanna.

Skiptingin á verknáms- og bóknámsdeild eykur fjölbreytni og uppfyllir þá skoðun mþn., að skólarnir eigi að skapa einstaklingunum sem mestan þroska og við sem flestra hæfi. Þótt þetta sé nokkur nýbreytni, þá er hér ekki um neina byltingu að ræða frá því, sem verið hefur. Réttara væri að segja, að þessi skipan staðfesti þá þróun, sem verið hefur á síðustu árum, og samræmdi þá skóla, sem til eru.

Í frv. um gagnfræðanám gerir mþn. áætlun um þann kostnaðarauka, sem leiðir af frv. Er þá fyrst um að ræða kostnað, sem leiðir af lengingu á skólatímanum. Samkv. skýrslum frá 1942 mundi þetta fyrirkomulag þýða um 3000 fleiri nemendur eða um 120 kennara og 20 skólastjóra. Þegar litið er á kennaralaun eins og þau eru nú, er þetta mikill kostnaður. En eftir upplýsingum frá fræðslumálastjóra hefur þróunin orðið þannig síðan 1942, að nemendaaukningin nú mundi verða einungis 40% af því, sem þá var, og sennilega má gera ráð fyrir sömu þróun á næstu árum. Jafnvel þótt þessi lög yrðu ekki samþ., þá er líklegt, að flestir unglingar mundu leita sér framhaldsmenntunar í framtíðinni. En ef gert er ráð fyrir, að aukningin yrði 1800 nemendur og þar frá dragist um 600 í sveitum og þorpum, þá eru eftir 1200 nemendur eða 40 kennarar. Eins og nú horfir við má gera ráð fyrir auknum kostnaði af kennarahaldi. Reiknað með 4 þús. kr. ársgrunnlaunum til hvers kennara verður það um 1200 þús. kr. Samkv. því, sem menntmn. Nd. áætlar, yrði rekstrarkostnaður um helmingur þeirrar upphæðar, eða um 600 þús. kr., eða kostnaður alls 1800 þús. kr., en þetta er miðað við það, þegar öll löggjöfin samkv. þessu frv. yrði komin til framkvæmda, en það tekur 5–6 ár samkv. því, sem frv. sjálft gerir ráð fyrir. Af þessu eiga menn að geta fengið nokkra hugmynd um kostnaðinn af þessari löggjöf, ef hún kæmi til framkvæmda, en hvort sem það yrði eða ekki, mundi þróunin halda áfram í þá átt, að æskulýðurinn muni sækja eftir aukinni framhaldsmenntun og þjóðfélagsstörfin krefjast hennar í ríkara mæli.

Þá er kostnaðurinn við að byggja skólana. Menntmn. þessarar d. hefur farið yfir þetta frv. ásamt menntmn. Nd. N. hafa unnið saman að frv. og gert við það nokkrar aths., sem menntmn. Nd. hefur tekið til athugunar, og hefur hún gert fáeinar breyt. á frv., og er sú breyt. helzt, að heimilað er nú að gefa undanþágu frá 15 ára skólaskyldu. 8. gr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta :

„Öll börn og unglingar eru fræðsluskyld á aldrinum 7–15 ára. Þó getur fræðsluráð ákveðið að fengnu samþykki fræðslumálastjórnar, að fræðsluskylda í einu eða fleiri skólahverfum innan fræðsluhéraðsins skuli aðeins ná til 14 ára aldurs, ef hlutaðeigandi skólanefnd óskar þess. Heimilt er sveitarfélögum með samþykki fræðslumálastjórnar að hækka fræðsluskyldualdur til 16 ára.“ — Í hinu upphaflega frv. hljóðaði gr. þannig:

„Öll börn og unglingar eru fræðsluskyld á aldrinum 7—15 ára og skulu ljúka barnaprófi og unglingaprófi, svo framarlega sem þau hafa til þess heilsu og þroska. Heimilt er þó sveitarfélögum með samþykki fræðslumálastjórnar að hækka fræðsluskyldualdur til 16 ára.“

Meiri hl. menntmn. þessarar d., sem skrifar undir nál., telur að vísu þessa breyt. heldur til spillis, en þar sem hér er aðeins um heimild að gera og samþykki til undanþágu frá fræðsluráði og fræðslumálastjórn, þá hefur ekki þótt ástæða til að breyta frv. aftur að þessu leyti í fyrra horf, og leggur meiri hl. n. til, að frv. verði samþ. — Einn nm., hv. þm. S.-Þ., hefur ekki getað fylgt frv. og skilar sérstöku áliti.

Ég held, að ekki sé ástæða til að fjölyrða meira um frv. þetta út af fyrir sig. Það er komið fram frv. um barnafræðslu og eins frv. um gagnfræðanám, og gefst tilefni til, þegar þessi frv. koma hvert fyrir sig, að ræða nánar um einstök atriði. Þetta er aðeins um skólakerfið í heild og samræmingu þess, raunverulega sjálfa grind fræðslukerfisins:

Ég mun ekki fjölyrða meira um frv. að svo stöddu, en legg til, að það fái fljóta afgreiðslu í d. og verði samþ.