20.02.1946
Efri deild: 68. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (1969)

28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda

Bernharð Stefánsson:

Ég rengi ekki það, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, að flestir nm. hefðu athugað málið. En nefndir eru ekki einungis skipaðar til þess að kynna sér málin sjálfar, heldur einnig til þess að skýra málsatriði fyrir samþm. sínum, eftir að athuganir hafa farið fram. En í þessu nál. er sáralítil tilraun gerð til þess að skýra málið, það eru alls um 3 línur, og auk þess er nú fram komið, að það er einungis frá meiri hl. n,, en víðtækar brtt. koma nú fram frá hv. minni hl. Ég treysti mér ekki til að taka afstöðu til þessara brtt. að svo stöddu og sýnist sjálfsagt, að málið fari til n. aftur. Hitt skiptir svo ekki máli, hvort það er samþ. með atkvgr. hér í d., úr því að hv. n. hefur fallizt á að athuga brtt. og taka afstöðu til þeirra.