04.03.1946
Efri deild: 76. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1167 í B-deild Alþingistíðinda. (1992)
28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda
Gísli Jónsson:
Það verður ekki um það deilt, að hér er á ferðinni mjög mikilsvert mál. Þeim mun meira er það furðulegt, að þessi málsmeðferð skuli vera viðhöfð. Í nál. er það sjáanlegt, að ekkert samkomulag hefur verið innan n., sem afgreiddi málið. Einn nm. var ekki á fundi og 2 áskildu sér rétt til að koma fram með brtt. Og hér er komin brtt. frá öðrum. Málið er því afgr. með atkv. minni hl. n. út úr n. Þess hefur verið óskað, að málið yrði aftur tekið til meðferðar í n. vegna þessarar meðferðar, en það virðist form. n. ekki geta fellt sig við. Ég álít, að ekki sé hægt að verja málið yfirleitt, og vildi vona, að hv. form. n. lýsi því yfir, að hann óski eftir, að umr. sé frestað og málið tekið til rækilegrar meðferðar í hv. nefnd. Ég vil leyfa mér að benda á, að ég mun bera fram 2 brtt. við 3. umr., ef ekki fæst fram, að þessi háttur verði viðhafður um meðferð málsins og reynt verði að koma á samkomulagi um málið í n. í samræmi við þær aths., sem fram hafa komið hér í hv. deild. Brtt. er við 8. gr. um, að fræðsluskyldan sé frá 7–14 ára í stað 15. Ég minntist á það fyrir nokkru við umr., sem fóru hér fram, að ég teldi það ná fullum tilgangi sínum, þótt skyldan væri ekki nema til 14 ára aldurs, ef ríkið væri skyldað til að sjá þeim nemendum, sem vilja læra, fyrir skilyrðum til þess. Ég sé ekki, hvað unnið er með því að ætla sér að þvinga alla unglinga til að nema til 15 ára aldurs, þegar vitað er, að aðsóknin til skólanna er svo mikil, að ríkið getur ekki fullnægt þeirri eftirspurn. Ég teldi réttara, að ríkið byggði fyrst yfir þá, sem vilja læra, áður en þvinga skal alla til að læra. — Vona ég, að hv. form. n. taki þetta til athugunar. Hins vegar mun ég setja fram viðbótarbrtt. við brtt. á þskj. 470 þannig: Enda sé fé veitt á fjárl. Því að það er þýðingarlaust að ákveða, að þetta komi til framkvæmda, eins og nú er, ef ríkið getur ekki séð fyrir þeirri hlið skólahaldsins, sem að byggingum snýr.
Hef ég þá skýrt afstöðu mína til málsins.