21.03.1946
Efri deild: 89. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1179 í B-deild Alþingistíðinda. (2005)
28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda
Bjarni Benediktsson:
Ég hef ekki fengið svar við því, hver sé þýðing frv. Eftir því, sem frsm. hefur sagt hér, virðist mér, að ríkisvaldið geti tekið fé úr ríkissjóði til framkvæmda þeirra, sem af þessu leiðir, án sérstakra samþykkta í fjárl., — eða ég spyr, hvort það sé réttur skilningur. Ég get tekið það fram, að ég er ekki á móti frv., en tel þetta ekki tímabært fyrr en hin frv. eru komin áleiðis, auk þess sem ég tel frv. þurfa nánari athugunar við.
Hvernig fer, eftir að þessi lög eru samþ., um heimild verzlunarskólans til að útskrifa stúdenta? Verður ekki að setja upp samfellda 4 ára stúdentaskóla? Hefur hv. þm. gert sér grein fyrir því? Eftir bókstaf l. er skólinn sviptur þeim rétti að útskrifa stúdenta. Ég vil fá skýringar á þessu. Ég beygi mig fyrir rökum, en ég verð að taka mark á því, sem ég sé sjálfur, og get ekki fallizt á það, sem hann segir, einkum þar sem hann talar sitt á hvað. Ég verð að beina þeirri beiðni til hæstv. forseta og hv. 1. þm. Reykv., að afgreiðsla málsins verði látin bíða og vita, hvort samkomulag fæst ekki. Ég vil leyfa mér að flytja skriflega brtt. við 11. gr., þannig að hún orðist svo : „Lög þessi taka gildi 1. febr. 1947 og koma til framkvæmda á árunum 1947–1953, eftir því sem fræðslumálastjórn ákveður í samráði við hlutaðeigandi fræðsluráð.“ — Ég vil hafa tryggingu fyrir því, að lögin taki ekki gildi fyrr en nægilega vel hefur verið gengið frá undirbúningi þeirra.
Vil ég svo óska þess, að málinu verði frestað, svo að mönnum gefist kostur á að ræða það sín á milli í flokkunum.