21.03.1946
Efri deild: 89. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í B-deild Alþingistíðinda. (2012)
28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda
Magnús Jónsson:
Ég stend upp með hálfum huga, þar sem samþm. minn, hv. 6. þm. Reykv., segist vita um þetta allt miklu betur en ég. Mér er ómögulegt að sjá, að það breyti nokkru frá núv. ástandi, þótt þessi l. verði samþ. (JJ: Verzlunarskólinn er dæmdur með þessum lögum). Ætli það séu ekki aðrir skólar, sem hv. þm. er hræddur um. Menntaskólarnir eru 4 ára skólar og útskrifa stúdenta, og hvergi í frv. eru aðrir skólar útilokaðir frá því að útskrifa stúdenta. Ég lít svo á, að þetta frv. breyti engu. Ég segi eins og áður, að ég legg ekki mikla áherzlu á, hvaða form verður haft á afgreiðslu þessa frv. Ég er hæstv. ráðh. sammála um það, að þetta frv. er engan veginn þýðingarlaust. Þessi mál eru í mjög hraðri þróun, og þarf að koma þeim í það form, sem þau eiga að vera í, sem fyrst. Ég held nú, að nokkuð seint yrði búið að undirbúa málið svo, að ekki gæti hv. 6. þm. Reykv. komið þar nögl á milli einhvers staðar og fundið eitthvað að því.