27.03.1946
Efri deild: 93. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)

28. mál, skólakerfi og fræðsluskylda

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég tek undir tilmæli hv. þm. Barð., að hæstv. forseti vildi taka til endurnýjaðrar athugunar, hvort ekki mundi hægt að opna umr. um þetta mál, þannig að meðferð málsins hér eftir væri svo sem umr. um málið hefði ekki verið slitið. Það fór fram hjá mér, að umr. um málið væri slitið, en ég hafði hugsað mér að bera fram brtt. Mundi hæstv. forseti ekki sjá sér fært að fresta umr. nú, svo að brtt. gæti komizt að og hægt væri að ræða um hana á formlegan hátt?