05.04.1946
Neðri deild: 103. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1196 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)
128. mál, landshöfn í Keflavíkur- og Njarðvíkurhreppum
Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. Mál þetta var upphaflega flutt hér í d. af sjútvn. fyrir hönd hæstv. ríkisstj. Nú er þetta mál komið aftur frá Ed. þannig útleikið, að ég verð að rifja upp sögu þess að nokkru. Frv. er upphaflega samið af mþn. í sjávarútvegsmálum fyrir tveimur árum og reynt að vanda sem bezt til málsins frá upphafi. Mþn. studdist við eldri hafnarlög auk þess sem vitamálastjóri og ráðherra aðstoðuðu hana, og enn fremur fékk hún lögfræðing úr stjórnarráðinu sér til aðstoðar.
Loks ferðaðist n. hér um strandlengjuna á Reykjanesskaganum og naut leiðsagnar vitamálastjóra, sem nú er hafnarmálaráðherra. Að þessum undirbúningi loknum var frv, samið með aðstoð þeirra, er áður greinir, og sent hæstv. samgmrh., en eftir var að jafna þá togstreitu manna á milli, hvar slík mannvirki skyldu sett niður. Allir vildu fá þau til sín. Hæstv. ráðh. gekk í það að leita samkomulags um þetta atriði, en það, sem n. og hæstv. ráðh þótti mikils vert, var að tryggja lóðir. Þegar hæstv. ráðh. hafði leyst þetta verkefni, lét hann breyta frv. í samræmi við það og fékk síðan sjútvn. það til flutnings. Sjútvn. athugaði frv. gaumgæfilega, en sá ekki ástæðu til að breyta því í neinu og hið sama varð álit hv. Nd., hún samþ. frv. eins og það kom frá hæstv. ráðh. En nú hefur frv. komið aftur til d. frá Ed., og hafa verið gerðar á því miklar breyt. að fyrirferð, þótt þær séu efnislega litlar, og skal ég nú skýra í hverju þær eru fólgnar.
1. gr. er höggvin í tvennt, en við þann stubbinn, sem eftir er skilinn, er bætt ákvæðum um takmark hafnargerðarinnar, en slíkt er venjulega ákveðið í reglugerð, enda eðlilegast, að hafnarstjórn setji slík ákvæði, en ef breyta ætti um takmark hafnargerðarinnar eftir að þetta er komið í l., þyrfti ný l. til þess. Sjútvn. leggur ekki til að fella þetta úr frv., til að tefja ekki málið.
Það er venja, að ríkissjóður leggur vissan hluta til slíkra hafnarframkvæmda, stundum allt að því helming. Það hefur verið haft svo um þessar hafnir, að talið hefur verið upp, hvað heyrir undir hafnarmannvirki. Slík upptalning er hér óþörf, þar sem þetta er landshöfn og ríkið sjálft byggir hann, en þetta hefur verið sett inn í frv. í Ed. og leggur n. ekki heldur til, að það verði fellt niður.
Þá kem ég að 2. gr., sem er síðari hlutinn af upphaflegri 1. gr. Þar er hið sama að segja, að n. vill ekki hætta málinu og lofar þessu að standa. — Breyt. á 3. gr. er efnislega lítil, en orðalagi er hrært til og það sett fyrst, sem síðast skyldi vera. N. sér sér ekki fært að lagfæra þetta og fella inn í gr. mikilvæg atriði, sem burt höfðu verið felld.
Þá kem ég að þeim efnislegu breyt., sem einkum hafa verið gerðar og urðu til þess, að n. varð að gera breytingu á frv., þótt það kunni að stofna málinu í nokkra hættu. Í fyrsta lagi hefur 2. gr. verið gerð að 4. gr. og þannig breytt um, að ríkið skal einungis ráða einum manni af fimm í stjórn hafnarinnar í stað þess, að áður skyldi það ráða þremur. Okkur sýnist eðlilegt, að ríkið skipi alla mennina í stjórn hafnarinnar, og fráleitt að ganga lengra en svo, að aðrir aðilar tilnefni tvo. Við nm. leggjum sérstaka áherzlu á, að frv. verði ekki að lögum án þess að ríkið eigi meiri hl. í stjórn hafnarinnar.
Þá hefur í hv. Ed. verið felld ein gr. út úr frv., sem sú hv. d. taldi ekki þörf á, en sú gr. var áður 7. gr. Þessi gr. fjallaði um skyldur hafnarstjórnar og byrjaði m. a. með því, að ekki mætti selja eignir hafnarinnar. Þetta mun hv. Ed. hafa talið, að ekki þyrfti að taka fram, vegna þess að það væri ekki leyfilegt hvort sem væri að gera slíkt.
En það er svo margt annað í gr., sem kveður skýrt á um það, hvað hafnarstjórn megi ekki gera, að það getur ekki staðizt, að þau ákvæði vanti alveg í l. Þess vegna leggjum við til, að þessi gr. verði sett í frv. aftur. — Aðrar breyt. leggur n. ekki til og reynir að fara svo vægilega í þetta sem frekast má verða, til þess að ekki valdi ágreiningi hjá hv. Ed.
Annars verð ég því við að bæta, sem er ekki frá n., en hv. skrifstofustjóri Alþ. tók eftir því, að það er orðaskekkja í bráðabirgðaákvæðinu, því að þar þarf að bæta inn í einu orði. Þar, sem þar er sagt : „kosning endurskoðenda,“ á að vera : „kosning fyrstu endurskoðenda.“ Má vera, að þetta megi leiðrétta sem prentvillu, en ég hef sett það inn sem brtt.
Þá er þeim brtt. lokið, sem við nm. leggjum til við frv., og þar er svo vægilega í sakirnar farið, að ég vil vænta þess, að hin mjög svo vandláta hv. Ed. sjái sér fært að samþ. frv. óbreytt, eftir að þessar hógværu brtt. hafa verið samþ., en setji ekki málið í voða með því að vera að skaka því frekar á milli deilda.
Ég vil svo taka sérstaklega fram í fyrsta lagi, — auk þessa, sem ég nú sagði hér um breyt., sem n. leggur til, að gerðar verði á frv. hér í hv. d., — að í frv. er auðvitað ekkert sagt um, hvernig fylla skuli út í þann ramma, sem markaður er með ákvæðunum um takmörk hafnarinnar. En þetta er, eins og sumum hér kann að vera kunnugt um, mjög mikið svæði, sem hafnarmörkin umlykja. Og því vildi ég þá um leið bæta við, að þó að þarna sé nú í frv. nokkuð fram tekið um mörk hafnarinnar, þá efast ég um það, að það séu meira en þrír eða fjórir menn hér í hv. d., sem þekkja nokkuð, hvar þessi hafnarmörk eru, svo að það sýnist ekki vel til fallið að setja slíkt í l. Það á vitanlega að koma í reglugerð, sem sett sé af kunnugum mönnum með samþykki ríkisstj. Nú eru uppi, sjálfsagt frá hendi hæstv. ráðh. og vitamálastjóra, ráðagerðir um það, hvernig út í þennan ramma skuli fyllt, hvar skuli byrja á hafnarmannvirkjunum og hvernig þau skuli vera. En annars er þó um það nokkur ágreiningur. Og það er vitanlega bæði af því, að hver vill nú hafa þessi mannvirki þar, sem honum þykir sér henta bezt, og einnig af því, að menn eru ekki á sömu skoðun um skilyrði til afgreiðslu skipa eftir því á hvaða stað er. Það hafa verið nokkur átök um það t. d., hvort byrja skuli á því að gera aðstöðu til legu og lendingar í Ytri-Njarðvík eða Innri-Njarðvík, þó að öll fyrirætlunin sé að loka þessari miklu höfn með sínum garði frá hvoru landi. En ég vil taka það fram, að n. þótti, að þeir uppdrættir, sem við höfum haft fyrir okkur, væru miðaðir yfirleitt og raunar allir við það, að fyrstu aðgerðir verði gerðar í Ytri-Njarðvík. En þó er skoðun ýmissa manna, að það sé alveg nauðsynlegt, að byrjað sé jafnframt á nokkrum aðgerðum í Innri-Njarðvík, þar sem þegar eru nú komnar ýmsar verksmiðjur til hagnýtingar sjávarafla. Hæstv. samgmrh. hefur alveg nýlega átt tal við sjútvn. um þetta og látið í ljós þá skoðun sína, að það sé alveg nauðsynlegt, þó að höfuðaðgerðirnar yrðu í Ytri-Njarðvík, að þá komi alveg jafnsnemma og á sama tíma garður út frá landi 100–200 m. í Innri-Njarðvík, þar sem bátar geti fengið legupláss og pláss til að athafna sig. Mér þykir rétt að taka þetta fram, þó að ég fyrir mína hönd og n. geti lýst yfir, að við ætlum okkur ekki þá dul, að við höfum sérstakt vit á þessu, því að það liggur vitanlega á sviði verkfræðinga og nákunnugra manna á staðnum að ákveða um þetta nákvæmlega.
Svo vil ég að lokum taka fram, að það er ákaflega mikið vandræðamál að þurfa að skaka mjög mikilsverðum málum á milli d. fyrir litlar ástæður, fyrir það, að menn hengja sig í orðalag eða form, sem ekki breytir efni og merg málsins á nokkurn hátt. En þetta er orðið mjög tilfinnanlegt og er orðið fullkomið vandræðaástand, því að það er ekki aðeins, að það stofni miklum málum í mikla hættu, heldur er það svo óhaganlegt hvað snertir það að nota tíma, að við slíkt verður varla unað. Og hinn mikli dráttur á afgreiðslu mála og að sumra áliti hinn óhæfilega langi þingtími stafar að ekki litlu leyti af vöntun á samvinnu um það, að hv. þd. séu ekki að tæta niður mál hvor fyrir annarri að ástæðulausu. Og ég hygg, að um svona mál eins og þetta sé það að segja, að það hefði ekki þurft að fara aftur á milli deilda, ef gætt hefði verið fullkominnar skynsemdar í meðferð þess. — Það átti nú að vera fyrir þessu þingi frv. um breyt. á stjórnlögum landsins. Meðferðin á þessu máli, sem hér liggur fyrir, gefur mér fullkomna ástæðu til þess að minna á það, sem oft hefur verið áður um talað, að þegar svo er komið, að allir hv. þm. eru kosnir nákvæmlega eftir sömu reglum, þá er skipting þingsins í deildir í raun og veru orðin þýðingarlaus. Og ef svona tafir, eins og hafa orðið á þessu þingi, að verulegu leyti fyrir það, að hv. þd. hafa verið að kasta á milli sín málum, geta ekki sannfært menn um, að það eigi að leggja Ed. niður, þá veit ég ekki, hvernig menn geta komizt að niðurstöðu um slíka hluti.