18.10.1945
Efri deild: 9. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1203 í B-deild Alþingistíðinda. (2091)
21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka sjútvn. fyrir að hafa lagt frv. þetta fram hér. Frsm. hefur hér á undan lýst frv., og hef ég litlu þar við að bæta. Megintilgangur frv. er að safna saman í eina heild öllum l. þetta varðandi, svo að þau verði aðgengilegri. En í þess stað hefur áður þurft að fá í hvert sinn sérstaka fjárveitingu samþ. til þess að hægt væri að hefja framkvæmdir, og hefur það haft í för með sér fjölda slíkra l. vegna óstöðugs verðlags, þar eð engar áætlanir hafa staðizt nema 1 ár í senn. Sama máli gegnir, ef mannvirkin eru aukin frá því, sem áætlað var í upphafi, og þarf þá ný lagafyrirmæli, en úr þessu á frv. að bæta, og þarf því ekki lagabreyt. til þess að fá styrki eða ábyrgð fyrir mannvirki, sem á annað borð eru komin inn í lögin. Það er nýmæli, en stendur til bóta, að taka upp styrkhæf mannvirki. En vera má, að einhverju þyrfti við að bæta, og væri ég fús til þess að ræða um það við n., ef hún óskaði. Í frv. segir, að ríkisstj. sé heimilt að ábyrgjast lán til hafnargerða og lendingarbóta í þeim hlutföllum, sem l. gera ráð fyrir, en ekki frekar en veitt er til þeirra í fjárl. Oft er unnið meira en veitt er til í fjárl., og leggur þá staðurinn oft fram fé til bráðabirgða, og væri því ástæða til þess að athuga, hvort ekki væri hægt að veita þessa heimild rýmri. Upptalningin í 2. gr. er ekki tæmandi, og fleiri staðir gætu komið til greina, en flestir þeir staðir, sem nú eru í hafnarl., eru þó teknir upp í frv. Ég hef orðið þess var, að á þessu Alþ. hafa verið flutt 2 eða 3 frv. um hafnargerðir. Fjöldi slíkra frv. mundi því verða mikill. Hins vegar er hægt að fella þessi frv., sem þegar eru fram komin, inn í ramma frv. — Ég ætla svo ekki að ræða þetta frekar, en vildi með örfáum orðum skýra, hvernig málið lítur út frá mínu sjónarmiði, og væri ég fús til að ræða við n., ef hún vildi breyta einhverju varðandi þetta.