15.11.1945
Neðri deild: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (210)

6. mál, togarakaup ríkisins

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Hv. 8. þm. Reykv. hefur flutt brtt. við 1. gr. frv. um, að ríkisstj. hafi heimild til að kaupa 50 nýja togara í stað 30. Ég óska ekki eftir, að þessi till. verði samþ., enda hefur hún enga jákvæða þýðingu.

Þegar þetta mál var rætt í stj., bar stj. öll saman ráð sín um, hvaða frumkvæði og framkvæmd stj. þyrfti að hafa í þessu efni til að tryggja, eftir því sem hún taldi heppilegast, hagsmuni þjóðarinnar. Í þeim viðræðum kom ekki fram neinn vilji um það, að farið væri lengra en gert er með frv. Það var að vísu á frumstigi þessa máls látin í ljós sú ósk, að ef ekki tækist að fá í Bretlandi og einnig í Svíþjóð meira en 15 skip eins og þá horfði, þá yrði tekið til athugunar, hvort ekki þætti möguleiki á að kaupa skip frá Ameríku, þó að fyrir lægju upplýsingar um, að þau væru dýrari og einnig kannske óhentugri, og hæstv. dómsmrh. varpaði eitt sinn fram þeirri uppástungu, hvort ekki væri rétt, að stj. festi kaup á 30 togurum í Bretlandi og sjá svo, hvernig því yndi fram. Í öndverðu hafði ég hugsað mér, að stj. hefði fyrst og fremst þau afskipti af málínu að leitast við að tryggja Íslendingum rétt til að byggja skip í Bretlandi eða annars staðar og létta fyrir einstaklingum að hagnýta þau leyfi. En það kom í ljós, að ef átti að tryggja Íslendingum á annað borð þennan rétt til að byggja, þá varð stj. sjálf að festa kaup á skipunum, og var horfið að því ráði. Við bundum okkur þá við 30 togara, án þess að nokkur uppástunga kæmi fram um frekari rétt í þessu efni. Við gerðum þetta í fyrsta lagi af því, að við töldum þetta hæfilega í sakirnar farið. Í öðru lagi hafði nýbyggingarráð stungið upp á, að við héldum okkur við töluna 30. Við fengum svo rétt til að láta byggja 30 togara í Bretlandi, og við það vil ég láta sitja í bili, hvað sem öðru líður, og af þeim ástæðum tel ég óþarft að samþ. þessa till. og því fremur, sem hún er nokkuð út í bláinn, því að þær upplýsingar, sem við höfum í dag, hníga að því, að þess væri ekki kostur að gera skynsamlega samninga um byggingu fleiri togara, eins og sakir standa. Mér er tjáð, að nú séu allar brezkar skipasmíðastöðvar uppteknar fram á árið 1948. Mér er einnig tjáð, að jafnvel þótt takast mætti að fá einhver skip byggð í Svíþjóð, þá mundu þau verða mjög miklu dýrari en þau, sem nú hafa verið fest kaup á. Mér er einnig tjáð, að ef ætti að snúa höfðinu í vesturátt og leita fyrir sér þar, þá væru sams konar skip og þau, sem við höfum fest kaup á í Bretlandi, afar miklu dýrari í Bandaríkjunum og afar hæpið, að þau gætu fengizt byggð þannig, að viðunandi öryggi væri fyrir, að þau hentuðu okkur eins og brezku skipin. Af þessum ástæðum einnig tel ég, að till. sé þýðingarlaus, eins og sakir standa. Ég vil einnig taka fram, að ég tel ekki viturlegt að stýra hærra en gert hefur verið, þar til nýbyggingarráð hefur lagt fram heildarskýrslu um meiri þörf þjóðarinnar annars vegar og gjaldeyris- og mannorku hins vegar. Það mætti segja, að út frá þessu sjónarmiði væri till. meinlaus og gagnslaus. Ég óska samt, af því að ég tel hana gagnslausa, að hún verði ekki samþ., og það, sem fyrir mér vakir, er, að ég vil, að till. stj. hér á þingi styðjist við raunveruleikann, það sem við meinum, en ekki nein leiktjöld. Ríkisstj. hefur ekki fengið orð fyrir, að hún væri sporlöt til framfara, og sumum hefur þótt nóg um, hvað hraðgeng hún er. Ég álít, að allir, sem vilja unna stj. sannmælis, geti fallizt á, að hún hafi ekki látið undir höfuð leggjast, eftir því sem fremsta geta hefur staðið til, að efna þau fyrirheit, sem hún hefur gefið á sviði þeirra mála, sem hún tók að sér að framkvæma, heldur hafi hún eiginlega gengið fullt svo langt sem þeir bjartsýnustu hafa vonazt eftir. Og einmitt af því að ég vil, að áfram haldi sá alvörublær, sem hefur einkennt efndir stj. í þessu efni, þá vil ég ekki, að till. sé samþ., því að ég hef ekki trú á, að hún verði framkvæmd. Ég vil einnig leiða athygli að því, að till. hefur verið flutt án þess að það hafi verið orðað við mig, og þó er ég að flytja hér frv. fyrir hönd ríkisstj., en ekki sem þm. G.-K. Og ef á að gera þá breyt. að heimila kaup fyrir 50 skip í stað 30, þá hefði ég viljað, að þessu fylgdi alvara, að jafngóður stuðningsmaður stj. og hv. flm. till. talaði um það við mig, en hann eða hans flokksbræður hafa ekki gert það. Ég lít þess vegna þannig á, að í bili sé engin þörf fyrir frekari heimild, og ég álít, að þótt við fengjum hana, hefðum við ekki möguleika til að hagnýta hana fyrr en 1948, og ég óska ekki eftir till. af þessum ástæðum, því að ég vil, að till. okkar feli í sér það, sem við ætlum að gera, en ekki það, sem við ætlum ekki að gera. En ég vil segja skýlaust, að ef við verðum varir við það við sölu þessara togara, sem nú er búið að festa kaup á, og ef nýbyggingarráð telur fært að ganga lengra, mun stj. taka málið til nýrrar athugunar, og ég veit, að stuðningsmenn stj. þurfa ekki að óttast, að hún muni veigra sér við að fullnægja þeirri þörf, sem er raunveruleg, hvort sem það yrði gert á síðara stigi þessa máls eða flutt nýtt frv. eða gefin út bráðabirgðal. Stj., sem hefur talið fært að gefa út bráðabirgðal. um að ráðast í kaup á 30 togurum, mun ekki síður telja fært, þegar búið er að selja þá, að ganga lengra, ef þörf krefur og ástæður leyfa. Ég vil því helzt mælast til, að hv. flm. vildi taka till. sína til baka.

Ég þarf svo ekki að segja fleira á þessu stigi.