29.11.1945
Efri deild: 41. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)

21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Jónas Jónsson:

Ég vil leyfa mér að beina nokkrum orðum til hv. 6. þm. Reykv., borgarstjórans, út af Elliðaárvogi. Við höfum haft þá ánægju að vera flm. saman að till., sem hratt þessu máli af stað. Þessu máli hefur verið vel tekið af ríkisstj. það sem það nær. Ég fer ekki út í skoðanamun milli hv. 6. þm. Reykv. og hv. þm. Barð., en ég vil gjarnan vita frá borgarstjóranum, hvort hann sér sér ekki fært að beita sér meira en verið hefur fyrir, að þetta nái fram að ganga. Vil ég í því efni benda á þau stórfelldu skipakaup, sem nú standa til, 30 togara, og hin nýju skip Eimskipafélagsins, sem munu verða miklu stærri en skip, sem hér hafa verið áður, hina nýju Esju og minni strandferðaskip. Allur þessi skipastóll kemur væntanlega hingað eftir nokkra mánuði eða missiri, og þá er svo ástatt, að ef þarf að taka skipin á land, þó að ekki sé nema vegna einfaldrar viðgerðar, þá er það ekki hægt, vegna þess að þau áhöld, sem hér eru til, eru of lítil og veikbyggð, svo að legið hefur við slysi út af því. Mér sýnist og vil skjóta því til hv. þm., að eðlilegast sé, að sömu kraftar sem starfa að þessum skipakaupum, nýbyggingarráð, fyndu hjá sér hvöt, kannske í samráði við ríkisstj. og bæjarstj., til að láta þennan óhjákvæmilega lið í skipamálum okkar komast í framkvæmd. Ég vil enn fremur heyra nánar frá borgarstjóranum, hvernig háttað sé samningum við þau einkafyrirtæki og ríkisfyrirtæki, sem nú eru byrjuð við Elliðaárvog. Það er ánægjulegt, það sem það er. Þar er Landssmiðjan að koma upp aðstöðu til að geta byggt í einu fjóra stóra vélbáta, og þar eru einnig tvö einkafyrirtæki, sem reka talsverða starfsemi og vilja gera meira, sem sýnir, að þetta er allt í samræmi við það, sem ætlazt var til í sambandi við þetta fyrirtæki, að þessi stóra skipasmíðastöð, bátasmíðastöð og viðgerðarstöð yrði sumpart eign bæjarins, sumpart eign ríkisins og sumpart einstakra manna. En mér finnst óneitanlega eðlilegt, að Reykjavík og ríkið þrýsti meira á þetta, vegna þess að ríkisstj. hefur, hvort sem það er rétt eða rangt, beitt sér fyrir stórum útgerðarplönum, og þá er bráðnauðsynlegt, að þessar framkvæmdir komi í sambandi við það, og samúð manna með þessu máli allt frá byrjun sýnir, að þetta er það, sem menn vilja láta geta.

Þá vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. samgmrh. um viss framkvæmdaatriði í hafnarl. Ég vil taka dæmi um það frá mannvirkjum, sem nú er verið að vinna að, og tek ég þá fyrst Húsavíkurhöfn. Þar stendur svo á, að búið er að gera nokkuð mikið af aðalgarði hafnarinnar, en þó er meira eftir, og hlýtur það að taka langan tíma, hvað vel sem þingið gerir við höfnina í fjárveitingum. Hér til viðbótar er bryggjan mikla, sem gerð var fyrir nokkrum árum, en í hana hefur komizt maðkur, og verður henni sennilega ekki bjargað nema með því að klæða hana málmþynnum, eins og sums staðar hefur verið gert við höfnina í Reykjavík. Hæstv. samgmrh. mun vilja greiða fyrir þessu máli eins og hægt er. En það er eitt, sem er ekki nógu ljóst í l. og ég vildi fá að vita betur um, en það er, hvernig þær ýmsu hafnir eiga að fara að, meðan þær fá ekki nema part af því, sem ríkið þarf að leggja fram. Það getur kannske verið, að 800 þús. kr. gætu bjargað bryggjunni á Húsavík, og verður að taka til þess lán nema að því leyti, sem beint framlag kemur frá ríkinu. Nú vil ég fá að vita það, sem er verulegt atriði, hvernig ríkisstj. mundi greiða fyrir því, að t. d. Húsavík gæti fengið ábyrgð ríkissjóðs fyrir láni til að bjarga svona mannvirki undan skemmdum, og til að koma fram endurbyggingu, sem er undirstaða undir því, að höfnin geti borið sig, því að þegar bryggjan er komin, mun rísa þarna upp síldarverksmiðja, og er loforð um það frá síldarverksmiðjum ríkisins. En ef þessar framkvæmdir dragast fyrir fjárleysi, þá mun höfnin leggjast eins og byrði á Húsavíkurbæ, meðan hún hefur ekki nægilegar tekjur. Svona er það miklu víðar með hafnarmannvirki. Mér þætti gott að heyra, hvað hæstv. ráðh. segir, hvernig hann mundi reyna að hjálpa í þessu máli, þó að ekki komi til ríkisfjárveiting.