15.11.1945
Neðri deild: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

6. mál, togarakaup ríkisins

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Hæstv. forsrh. var ekki staddur í d., þegar ég flutti framsöguræðu fyrir þessari till. (PZ: Það er nú ekki óvanalegt.) Höfuðrökin fyrir till. eru þau, að eftirspurn er eftir fleiri togurum en þeim 30, sem hæstv. stj. hefur nú fest kaup á. Það hefur verið dregið í efa hér á þingi, að kaupgeta stæði á bak við allar þessar óskir. Ég sé ekki, að það sé á verulegum rökum reist, því að ósennilegt er, að einstaklingar eða félög fari að leita heimilda fyrir kaupum, nema tryggt sé, að kaupgeta sé fyrir hendi og alvara fylgi máli. Þetta er fyrsta atriðið, sem ber að leggja áherzlu á í sambandi við þessa litlu till. mína.

Annað atriðið er það, sem greinilega kom fram í framsöguræðu hæstv. forsrh. fyrir málinu á sínum tíma, að nú á tímum eru ýmiss konar vandkvæði á svo stórum viðskiptum sem skipakaup eru nema fyrir meiri og minni íhlutun stj. Slík mál eru að meira og minna leyti milliríkjamál. Við verðum því að gæta þess, að jafnvel þótt einstaklingar kynnu að eiga þess kost að kaupa togara eða önnur stór skip án milligöngu stj., þá tel ég málinu stórlega miklu betur borgið með því, að stj. hafi þar milligöngu. Mér þykir því að öllu þessu athuguðu ekki nema rétt og sjálfsagt að gera þá heimild víðtækari, sem hæstv. stj. mundi fá með þessum l., heldur, en þá heimild, sem hún aflaði sér með bráðabirgðal. Það er eðlilegt, að stj. vildi með setningu bráðabirgðal. ekki ganga lengra en hún taldi nauðsyn á því stigi málsins, en hitt er alveg ljóst, eins og greinilega kom fram í ræðu hæstv. forsrh., að væri eftirspurnin meiri en hægt væri að fullnægja með núverandi heimild.um, að þá vill hæstv. stj. beita sér fyrir, að þar verði úr bætt. Og þá finnst mér í alla staði eðlilegt og sjálfsagt, að hæstv. stj. sé gefin heimild til þess, því að ég ber fullt traust til hennar, að hún misbeiti henni ekki. Ég held, að hún noti hana því aðeins, að eftirspurn sé eftir þessum skipum og hægt sé að komast að svo hagkvæmum samningum, að viðunandi sé.

Hæstv. ráðh. segir, að fyrir liggi, að því nær sé ókleift að kaupa fleiri togara. Hann veit auðvitað betri skil á því en ég, en ég leyfi mér þó að draga í efa, að fram hafi farið fullkomin rannsókn á því, og ég held, að þvert á móti séu líkur til, að í Ameríku megi fá byggða togara og það fyrir viðunandi verð. Ég skal ekkert um það fullyrða, en ég veit, að hæstv. stjórn mundi rannsaka það, ef hún fengi þá heimild, sem ég legg til, að henni sé gefin, og eins og ég áðan tók fram, treysti ég henni til að gera það eitt í málinu, sem skynsamlegt getur talizt.

Ég tek undir það, að full alvara hafi verið um framkvæmdir á þeim innkaupsáformum, sem hæstv. stjórn hefur haft með höndum, og svo á einnig framvegis að vera, en þessar till. eru ekki til þess fallnar að draga úr því, heldur aðeins til þess að gefa hæstv. stj. nokkru víðtækari heimild, af því að ég tel sjálfsagt að kaupa fleiri skip af þessu tagi, ef eftirspurn er fyrir hendi og hægt er að fá skipin með þeim kjörum, sem bærileg geta talizt.

Ég mun svo ekki sjá ástæðu til að fara um þetta mál fleiri orðum og ekki sjá ástæðu til að taka till. til baka, þó að ég beri fullt traust til hæstv. stj., að hún muni leita fyrir sér um skipakaup síðar meir, jafnvel án þess að hafa heimild, en mér sýnist þó betra fyrir hana að hafa heimildina en að hafa hana ekki.