25.03.1946
Neðri deild: 94. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1237 í B-deild Alþingistíðinda. (2128)
21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Á þskj. 593 flyt ég brtt. um það að taka inn tvo nýja staði undir lendingarbætur, þ. e. a. s. undir 2. gr. B. Sá fyrri er Drangar á Snæfellsnesi. Þar er svo mál með vexti, að bátar þeir, sem halda uppi áætlunarferðum þar inn með Skógarströndinni frá Stykkishólmi, hafa helzt orðið að lenda þar, og má þar helzt teljast lendingarmiðstöð á Skógarströndinni. Það hafa legið fyrir þinginu beiðnir um að gera þarna nokkrar lendingarbætur.
Hinn staðurinn er Beruvík á Snæfellsnesi. Þar má segja, að sé sveitaþrop, og þar hafa einnig legið fyrir beiðnir um lendingarbætur. Bátar frá Hellissandi hafa oft leitað þar skjóls í vondum veðrum.
Ég tel, að ekki þurfi að gera frekar grein fyrir þessu, en vil óska þess, að þetta verði samþ.