26.03.1946
Neðri deild: 95. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1239 í B-deild Alþingistíðinda. (2140)

21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Gunnar Thoroddsen:

Við fyrri hluta umr. gerði ég grein fyrir brtt. minni, þeirri er ég flutti um, að tveir staðir skyldu teknir inn í frv. Mót von minni hefur sjútvn. ekki mælt með henni, enda eigi tekið neina afstöðu til hennar. Stafar þetta e. t. v. af ókunnugleika viðkomandi manna. Ég veit, að sízt er ástæða að taka suma aðra staði fremur en þessa inn í frv. Áður en ég flutti till., hafði ég tal af tveim verkfræðingum á vitamálaskrifstofunni, og töldu báðir, að till. mín mætti vel ganga fram, — þessa staði ætti með réttu að setja í frv. — Ástæðulaust er að flytja till. um breyt., er koma til greina næsta ár.