13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (2166)

21. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Mál þetta var tekið út af dagskrá í gær, og reiknaði ég með, að það yrði rætt í sjútvn., því að Ed. hefur gert á því breyt., sem eru mjög á annan veg en Nd. gerði ráð fyrir. Þar sem sjútvn. hefur ekki tekið málið fyrir, vil ég leyfa mér að flytja skrifl. brtt. við frv.

Í Ed. hefur verið sett inn ákvæði í 9. gr. við 4. málsgr. þess efnis, að ekki sé heimilt að taka hafnargjöld af vörum, sem skipað er upp á bryggjur, sem einstaklingar eiga. Ef þetta verður samþ., þá er leyfð smuga fyrir einstaklinga að komast hjá að greiða vörugjald. Ég tel það ákvæði mjög óeðlilegt og óviðeigandi. Hin brtt. er í rauninni í sömu átt, í 3. mgr. var sett vafaákvæði, og á að vera matsatriði, hvort bryggjur einstaklinga njóti hlunninda af hafnargerðinni. Og væri það þá á valdi viðkomandi ráðh. að leggja gjald á hafnarmannvirki. Brtt., sem ég ætla að leggja fram, ganga í sömu átt og deildin gerði ráð fyrir í fyrstu.