22.10.1945
Neðri deild: 14. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1245 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)
32. mál, búnaðarmálasjóður
Flm. (Bjarni Ásgeirsson) :
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, hefur það að innihalda, að við flm. leggjum til, að niður falli nokkur orð úr 1. um stofnun búnaðarmálasjóðs, þar sem um getur í 1. gr., að landbrh. verði að samþ. fjárhagsáætlun búnaðarþings um ráðstöfun á sjóðnum. Ákvæði þetta var sett inn í meðförum síðasta þ. um frv. til l. um búnaðarmálasjóð, og hefur það valdið mjög mikilli óánægju meðal bænda og hefur komið fram fjöldi áskorana til Alþ. um að nema þetta ákvæði burt úr í., bæði frá búnaðarþingi, Stéttarsambandi bænda, frá flestum búnaðarsamböndum og mörgum öðrum félögum bænda. Bændur líta þannig á, að það fé, sem þeir leggja fram í búnaðarmálasjóð, sé hliðstætt því, sem aðrar stéttir leggja fram til sinna starfandi stéttarfélaga og eru einráðar yfir, og þess vegna telja þeir, að á sama hátt eigi fulltrúar bænda að ráða, hvernig fé eigi að verja úr þessum búnaðarmálasjóði. Bændur líta þannig á, að enda þótt hið opinbera hjálpi til þess að innheimta þessi stéttargjöld þeirra, sem er mjög eðlilegt, því að þeir eiga mjög erfitt um innheimtu, þar eð bústaðir þeirra eru mjög dreifðir, þá sé það ekki réttlátt, að hið opinbera taki af þeim ráðstöfunarréttinn á fé sjóðsins; sérstaklega þegar þess er gætt, að ætlazt er til, að meginhlutinn af þessu fé renni til almennra framkvæmda meðal bændastéttarinnar, á sama hátt og það fé, sem veitt er til þeirra af hálfu hins opinbera og bændastéttin tekur þannig að sér að hefjast handa um. Telur hún, að þetta sé svo mikils virði fyrir ríkið í heild, að það geti vel aðstoðað með innheimtu þessara gjalda án þess að taka af henni valdið til ráðstöfunar á fé úr sjóðnum.
Það þarf ekki að taka það fram, að þetta frv. eins og það er flutt er á engan hátt stílað gegn núv. hæstv. landbrh., sem hefur haft mjög góða samvinnu við Búnaðarfélagið um ráðstöfun þessa fjár, og er engin ástæða til að ætla, að neinir árekstrar þurfi að verða við hann um þessi mál, en það breytir engu um eðli málsins, að bændur vilja hafa sjálfir vald yfir þessu fé og vilja ekki eiga það undir duttlungum hvers landbrh. á hverjum tíma, hvernig þessu fé verður ráðstafað.
Af þessum ástæðum er þetta frv. fram komið, og er óhætt að segja, að bændastéttin stendur yfirleitt einróma á bak við þær óskir, sem liggja til grundvallar þessu frv.