15.11.1945
Neðri deild: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í B-deild Alþingistíðinda. (219)

6. mál, togarakaup ríkisins

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Það gætir aðeins dálítils misskilnings hjá hæstv. ráðh. um mína skoðun á málinu. Ég hef sagt, að ég hafi ekki öðlazt sannfæringu um, að það eigi að ákveða þetta í dag, — annað hef ég ekki sagt. Við höfum fengið í lið með okkur ágæta menn, sem hugsa um þetta fyrir okkur og leggja fyrir okkur niðurstöður sínar. Flokkur sá, sem ég tel mig til, á formann þessara manna, þ. e. Nýbyggingarráðs. Þessir menn hafa lagt til að kaupa nú 30 togara, en ekki meira, en hæstv. ráðh. virðist hafa verið búinn að hugsa á undan þeim, en ég er að bíða eftir, að þeir hugsi áfram. Ég hef fengið þær upplýsingar, m. a. hjá hæstv. atvmrh., að litlar líkur séu til, að hægt sé að festa kaup á skipum annars staðar en í Bretlandi fyrr en eftir 1948, og ég hefði gaman af að heyra það af hendi hæstv. ráðh., að okkur beri að hlýða á till. þeirra manna, sem til eru kvaddir að fara með fé til nýsköpunar, hlýða á þær till., að við eigum ekki að festa kaup á skipum, sem ekki geta komið til landsins fyrr en eftir 1948. Í rauninni ber okkur ekki mikið á milli, eins og ég hef áður sagt, og þá aðeins um formið. Ég tel, að það eigi að bíða eftir heildarmynd af þessu og stj. í heild eigi þá að taka sínar ákvarðanir. Fyrst ekki liggur fyrir ágreiningur, þá finnst mér ekki liggja fyrir að reyna að skapa ágreining, sem ekki er fyrir hendi.