04.03.1946
Neðri deild: 79. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í B-deild Alþingistíðinda. (2211)
32. mál, búnaðarmálasjóður
Gísli Sveinsson:
Herra forseti. Ég hefði óskað þess, að hæstv. landbrh. væri hér viðstaddur, þar eð mig langaði til þess að gera nokkrar aths. við síðustu ræðu hans, ef hæstv. forseti gæti stillt svo til. (Forseti: Hæstv. landbrh. er ekki staddur í húsinu). Ég hafði leyft mér, þegar málið var til umr. hér á liðnu ári, að bera fram rökst. dagskrá um það, að hæstv. ríkisstj. hlutaðist til um það, að búnaðarsamböndin fengju málið til athugunar á ný, svo að þau gætu athugað það, þegar aðalfundir þeirra kæmu saman á komanda vori. En þetta komst nú ekki fram, og getur tilviljun hafa ráðið þar, en till. mín var felld og verður að sitja við það. En nú er fram komin önnur till. um að vísa málinu til hæstv. ríkisstj., en hún er þó vart eins ákveðin að efni og mín till. En hún er nú fram komin og liggur fyrir, og verða hv. þm. að sætta sig við það að greiða atkv. aftur og kemur það þá upp, hvort þeir hv. þm., sem bera svo mikið traust til hæstv. ríkisstj., að ekki má orðinu halla á hana, treysta eða vantreysta henni svo, að þeir þori að láta málið í hendur hennar. (JPálm: Væri ekki réttast að vísa fjárl. til ríkisstj.?) Já, það er mjög líklegt, að hv. þm. rugli nú öllu saman, fjárlögum og öðru, en hann er nú á nokkuð lausum kjala, bæði utan þings og innan. En við eigum nú í vændum að sjá, hverjir bera traust til hæstv. ríkisstj. að nýju.
Hér er ekkert persónulegt mál, sem um er að ræða, og á ekkert við hæstv. ráðh. Það er því út í hött að segja, að menn treysti honum ekki. Við teljum hann heiðursmann. En það er bara sá pólitíski ráðh., sem hér er á hverjum tíma, sem ekki á að hafa þetta vald, heldur þeir aðilar, sem kemur þetta við. Aðalatriðið er það, að menn treysta yfirleitt ekki hinum pólitíska ráðh., hver sem hann er.
Annars gaf hæstv. landbrh. mjög mikilsverðar upplýsingar hér í þessum umr., eftir því sem Morgunblaðið hermir, en það er orðrétt úr blaðinu svo, með leyfi hæstv. forseta :„Ráðh. kvaðst mundu hafa samþ. l. um búnaðarmálasjóð með glöðu geði, þótt þau hefðu verið afgr. án ákvæðisins um samþykki landbrh.“ En hér hefur verið hamrað á því, einkum af hv. þm. A.-Húnv., að hann væri björgunarmaður málsins og það væri komið hér inn fyrir atbeina hæstv. ríkisstjórnar. En hér höfum við ummæli þessa ráðh., sem málið kemur við, og gerir hann hér með ummæli hv. þm. A.-Húnv. marklaus með öllu. Með þessu eru fengnar upplýsingar um það, að hann hefði getað samþ. frv., þó að þetta ákvæði hefði ekki verið sett. Hér hljóta því einhverjir aðrir að hafa komið til. Skyldu það bara ekki vera björgunarmenn málsins? Þetta hlýtur að koma úr einni átt: frá kommúnistum. Og það ber allt að sama brunni. Hv. 1. landsk. leggur á þetta mikla áherzlu, og hann hefur fengið hv. þm. A.-Húnv. til þess að vinna fyrir sig þetta verk, en hann reynir svo að bera fyrir sig ríkisstj. Frv. hefði verið samþ., ef ekki hefðu önnur öfl á knúið. En ætla mætti, að hv. þm. væru nú farnir að átta sig á þessu. Ég vil vona, að þessar aths. mínar séu á fullum rökum reistar, þar eð þær styðjast við ummæli hæstv. ráðh., og ég tel, að betur ætti nú að ára, úr því að hv. þm. hafa áttað sig á málinu.
Ég vildi svo gera hérna nokkrar aths., sem að vísu er leiðara að gera í fjarveru hæstv. ráðh. Það var þá fyrst, er hann vitnaði til þess í lögum og reglugerðum, að svona yrði ekki gert nema með samþykki ráðh., og tók hann fiskimálasjóð sem dæmi. En sá samanburður missir alveg marks, því að um hann gilda sérstök ákvæði, sem ekki eru sett af fiskimönnum sjálfum, heldur að ofan, frá ríkisstj., og hafa fiskimenn ekkert með þau að gera. Í 13. gr. l. um fiskimálasjóðinn segir, að taka megi vissan hundraðshluta af útfluttum fiskafurðum í sjóðinn, og 14. gr. mælir fyrir, hvernig því skuli varið. Hér er því mjög ólíku saman að jafna, og hefur þetta aldrei verið á valdi annars en ríkisstj. sjálfrar. Það mætti auðvitað telja það sameiginlegt við þessa tvo sjóði, að gjald er ákveðið í þá báða.
Þá vitnaði hæstv. ráðh. til þess, að svona fyrirmæli væru ekki ný í héruðunum. T. d. mættu sýslunefndir ekki einu sinni ákveða lántökuheimildir, þótt allir væru því samþykkir, nema með samþykki ráðuneytisins. Og ekki mætti einu sinni setja fjallskilareglugerð án samþykkis viðkomandi rn., þótt manni fyndist það óneitanlega einkamál hvers héraðs. Þetta er gersamlega út í hött að öðru leytinu, en að hinu leytinu hefur það enga stoð í lögum. Sýslunefndir taka árlega lán án samþykkis ríkisstj. Þær taka kannske 200 þús. kr. lán án þess að spyrja leyfis. Það er hugsanlegt, að það hafi villt hæstv. ráðh., að ákvæði eru í l. um það, að bæjarstjórnir megi það ekki, en þær eru alveg hliðstæðar og hreppsnefndir, sem ekki mega taka lán nema með samþykki sýslunefndár. En bæjarstjórnir eru raunverulega það sama og hreppsnefndir. Ég segi því, að það sé hugsanlegt, að þetta hafi villt hæstv. ráðh. — Í þriðja lagi vitnaði hæstv. ráðh. í, að sýslunefndir mættu ekki samþykkja fjallskilareglugerðir nema með leyfi rn. En þetta er lagaatriði. Þetta er kvöð, og þarf því lagaboð henni til framkvæmda, og er þá samþykki ríkisstj. nauðsynlegt. Sýslunefnd getur hins vegar sett reglugerð án þess að leita nokkurrar staðfestingar, en ef hún felur í sér skuldbindingar, þarf að binda það með lögum. Þess vegna er það líka í sambandi við það sem einkamál hvers héraðs. Það hefur aldrei verið ákveðið í lögum, að það, sem ákveðið er í héraði sem einkamál hvers héraðs, skuldbindi borgarana eins og landslög væru. Til þess að slíkt fái lagagildi, verður að vera fyrst og fremst lagastafur fyrir því að setja slíkar reglur, og svo verður að lögfesta þær á eftir. Hv. þm. verða að fá að vita það rétta í þessu efni, svo að þeir geti ekki borið fyrir sig neitt; sem sagt er og ekki er á rökum reist.