12.04.1946
Efri deild: 105. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1328 í B-deild Alþingistíðinda. (2243)
32. mál, búnaðarmálasjóður
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að gefa hv. þm. S.-Þ. mörg heilræði, en eitt vil ég þó gefa honum, og það er það, að ég held, að það væri honum hollt að gæta að því, að hverju er hlegið, þegar hans nýju samherjar hlæja hér í salnum í kvöld. Það er naumast hægt að hugleiða sögu hv. þm. S.-Þ. og framkomu hans nú upp á síðkastið án þess að sjá, hve afstaða hans verður í senn brosleg og raunaleg. Sumum kann e. t. v. að detta í hug, að um einhver sannindi sé að ræða varðandi samninga milli Sjálfstfl. og Framsfl., eins og hv. 3. landsk. þm. vildi gefa í skyn, en ég vil upplýsa það, að þetta er einber heilaspuni, og má því til sanninda fletta upp í flokksbók Framsfl. Þar stendur ekki eitt orð um slíka samninga. Það var tilboð frá Sjálfstfl. og Alþfl., sem kannske er undirrót þessa orðasveims, en hv. þm. S.-Þ. virðist hafa allt annan hugsanagang en aðrir mennskir menn, þegar hann leitast við að finna óskum sínum og vonum stað í veruleikanum, og af þeirri ástæðu er framburður hans í þessu máli svo fjarri öllum sanni eða rökréttri hugsun. Þegar hann þrástagast á trúlofun, sem átt hafi sér stað 1942, kemur mér í hug saga um kerlingu, sem alltaf og ætíð sá trúlofaðar persónur, án þess að nokkur hæfa væri í slíku. Þannig fer hv, þm. S.-Þ. Hann sér trúlofanir, sem eiga sér enga stoð í veruleikanum og aldrei hefur verið til stofnað.
Það er allskoplegt að heyra nú, hvernig hv. þm. S.-Þ. talar um hæstv. forsrh., þennan góða, gráhærða, virðulega mann. Ja, öðruvísi mér áður brá. Það var öðruvísi lýsing á honum og flokksbræðrum hans, sem hv. þm. S.-Þ. gaf um þær mundir, sem hann hóf stjórnmálaferil sinn, og lýsing sú, sem hæstv. forsrh. hefur gefið af hv. þm. S.-Þ., er á þá lund, að ég treysti mér ekki til að hafa hana hér eftir. En það, sem var eftirtektarverðast í ræðu hv. þm. S.-Þ., var sá mórall, sem þar kom fram samhliða ofsjónunum, en hann er á þá lund, að hæstv. forsrh. er öfundsverður af því, að hann hefur fengið þm. Str. til að trúa sér og síðan brugðizt trausti hans. Þessi góði, gráhærði, virðulegi maður getur vissulega brosað að slíkum móral í ræðu hjá fornum andstæðingi, enda mun þetta vera eitt hörmulegasta vitni þingsögunnar um, hvert menn geta látið leiðast af hinum lægri hvötum.
Þá kem ég að því, þegar hv. þm. S.-Þ. tilfærði orð heimspekingsins Herberts Spencers, að sá vegur væri til að láta afbrotið sjálft leiða af sér hegninguna. Og það væri alltaf vís og örugg leið. — Ég mundi ekki telja mig öfundsverðan, ef ég væri kominn í ráðherrasæti á þann hátt, sem hv. þm. S.-Þ. lýsti, að hæstv. ráðh. væri kominn í það. En þessi mórall út af fyrir sig er dálítið einkennilegur. Og það er ekki rétt að láta hann fara fram hjá sér hér á spjöldum sögunnar án þess að vekja athygli á honum. Og ég verð að segja, að þegar litið er á önnur atriði þessa máls, þá verður þetta dálítið hvað öðru líkt. Það er ekki efi á því, að hæstv. ráðh. hefur gert talsvert að því að koma vingjarnlega fram við þennan hv. þm., og það kann að hafa laðað hann að honum. En þegar maður lítur á viðhorf þessa sama hv. þm. gagnvart Búnaðarfélagi Íslands og bændasamtökunum í landinu, þá verður þetta sama ofan á. Það eru fáir menn í svo kallaðri Selfosshreyfingu, sem fengizt hafa til þess að aðhyllast skoðanir, sem hv. þm. heldur fram viðkomandi viðhorfi bænda í bændasamtökunum, viðkomandi svo kallaðri eftirgjöf á afurðaverðinu. Og þessir menn eru — eins og hv. þm. tók hvað eftir annað fram. þegar hann lýsti atkvgr. í þessu máli, — menn, sem hann, að vísu að því er virtist óvart, sagði, að hann færi ekki að svíkja, þ. e. Selfosshreyfinguna. En Búnaðarfélag Íslands, með öllum þeim bændum, sem það hefur á bak við sig, það, sem hv. þm. S.-Þ. var einu sinni í mesta vinfengi við, það er nú óalandi og óferjandi, vegna þess að það vill ekki beygja sig undir hans vilja. Það var mikið skrifað til undirbúnings undir svo kallaða bændahreyfingu og bændasamkomuna á Laugarvatni. Hvernig fór það? Þar átti að koma fram nýr flokkur. Hv. þm. S.-Þ. kom þar. En mestu meðhaldsmenn Selfosshreyfingarinnar sögðu, að hann hefði aldrei átt að sýna sig þar. Hann sýndi sig þar og talaði þar, — en sigraði ekki. Það vildi næstum enginn á bændafundinum líta við stefnu hv. þm. S.-Þ. viðkomandi bændasamtökunum. Þess vegna urðu bændasamtökin, sem búið var að skrifa um mánuð eftir mánuð á þá leið, að þau mundu vekja nýja öldu í landinu, óalandi og óferjandi í augum hv. þm. S.-Þ., þegar sýnt var, að þau vildu ekki aðhyllast skoðanir hv. þm. S.-Þ. — Í Þingeyjarsýslu segir hv. þm. S.-Þ., að samþ. hafi verið með yfirgnæfandi meiri hluta, eins og á Selfossfundinum, mótmæli gegn 9,4% lækkuninni og annað í samræmi við það, sem hér er verið að prédika. Þetta getur verið. En einkennilegt er, að þegar kosnir eru menn úr kjördæmi þessa hv. þm. á fund bænda, þá voru kosnir tveir aðalandstæðingar hv. þm. S.-Þ. og Selfosshreyfingarinnar og þess að hafa bændasamtökin eins og hv. þm. S.-Þ. vill, þeir Björn frá Brún og Jón frá Gautlöndum. Og fyrst hv. þm. S.-Þ. fer út á það svið að ræða um þetta mál, þá verður að segjast, að sannleikurinn er sá, að það er næsta athyglisvert fyrir hann sjálfan, að flestir þeir menn og flestar þær stofnanir og flestar þær hreyfingar, sem hann áður var vinveittastur, hvort sem litið er á ungmennafélögin, Búnaðarfélag Íslands eða þær nýju hreyfingar, sem hann er að reyna að stofna, hvort sem litið er á slíkar hreyfingar eða menn, sem hafa verið í svipaðri afstöðu um vinfengi við hann, þá stendur þetta allt öfugt nú gagnvart honum við það, sem var. Og ég held, að það væri áreiðanlega þess vert fyrir hv. þm. S.-Þ. að fara að hugleiða þetta og hugleiða það, hvort sá hlátur, sem hann heyrir undir sínum ræðum hér hjá áheyrendum, er ekki að einhverju leyti kuldahlátur. Það er stundum gaman fyrir andstæðinga að heyra menn éta ofan í sig flest eða allt það, sem þeir hafa sagt og byggt upp á langri ævi.
Ég veit náttúrlega ekki, hvort ég man eftir því að mótmæla öllu því, sem hér kom fram hjá hv. þm. S.-Þ. af staðhæfingum og ósannindum. Það er t. d. eitt, að hv. þm. sagði, að hv. þm. V.-Sk. hafi lýst afdráttarlaust yfir, að hann hafi ekki ætlað að bjóða sig fram til þings á ný. Þetta er algerlega ósatt, eitt af því í ræðu hv. þm. S.-Þ., sem er gripið algerlega úr lausu lofti. Og verð ég að segja það um þennan hv. þm., að mér þykir leitt að þurfa hvað eftir annað að lýsa þessar frásagnir, sem hann kemur hér fram með, alger ósannindi. Ég hef enga ánægju af því, en það er ekki hægt að komast hjá því.
Þó að það kæmi ekki málinu mikið við, minntist hv. þm. S.-Þ. hér á kolluna, sem menn kannast mjög mikið við. Og hann sagði, að ég hefði, jú, skotið á þessa kollu, en hún hefði lifað, og eins hefði farið um hann sjálfan. Ég skal ekki neinu spá um það, hvernig fer með hv. þm., hvort hans pólitíska líf verður langt eða ekki. En ég verð að leiðrétta hv. þm. um kollumálið. Hin sögulega staðreynd er, að samkv. dómi hæstaréttar átti ég ekki að hafa sigtað á kolluna, en hún á að hafa dáið. — Og það kynni nú ekki að vera eins með þessar blaðagreinar, sem hann telur, að ég hafi skrifað. Það er a. m. k. ekki alveg víst, að ég hafi skrifað þær eða því skoti hafi verið sigtað á hann sérstaklega. En vonandi fer það þá ekki að öllu leyti um hann eins og kolluna.
Mér kemur ekki til hugar að ræða hér um flokksmál Framsfl. Það eru mál, sem hv. þm. S.-Þ. getur rætt á flokksfundum. Hann var boðaður á flokksfund, og þar gat hann rætt um þau mál.
Loks vil ég segja þetta: Það má telja einkennilegan leik örlaganna, að þetta mál skuli hafa orðið til þess að rifja upp það atriði, sem hv. þm. S.-Þ. telur höfuðsynd í lífi Framsfl. Ég álít, að það sé mjög fávíslegt að leggja áherzlu á að koma þessu máli fram, — mjög fávíslegt. Og ég vil, að það standi tvítekið í þeim orðum, sem ég segi um þetta mál. Ég er viss um það, að það líður ekki á löngu, að þessi lög verði afnumin. Og þau skulu verða afnumin. Ég á við þau lög, sem ég býst við, að nú verði samþ., þannig að bændur verði sviptir þeim rétti, sem þeir vissulega eiga. Það er fávíslegt vegna þess, að það er óhyggilegt gagnvart stórri stétt að sækja mál svona fast, — rangt mál. Og það má heita alveg merkilegt, að það skuli hafa orðið örlög hv. þm. S.-Þ. að fylgja þessu máli. Það er vitanlega alveg rangt hjá honum, sem þarf ekki að endurtaka hér í hv. d., að samningarnir haustið 1944 um afurðaverðið hafi verið óhagstæðir fyrir íslenzka bændur. Þeir samningar voru fyllilega hagstæðir fyrir íslenzka bændur. Og ég vil segja, að eins og þeir voru undirbúnir og með þeim réttindum, sem bændur áskildu sér, — sem þeir og munu sækja, — þá eru þeir hagstæðir, samanborið við það að þurfa að setja 18 kr. verð á kjötkg. Þessir samningar voru á allan hátt heppilegri en það. En það, sem kom á eftir þessu máli, eru svikin haustið 1945, þegar sanngirni bænda haustið 1944 er notuð til þess að níðast á þeim haustið 1945, með því að taka af þeim það vald, sem þeir áttu að hafa til þess að ákveða verð á afurðum sínum. Og þetta var gert án þess að þeir fengju nokkrar útflutningsuppbætur, sem þeir fengu samkv. samningunum um afurðaverðið árið áður. Þess vegna má það heita einkennilegt og tvenns konar leikur örlaganna, að hv. þm. S.-Þ., sem er að deila á okkur framsóknarmenn fyrir að hafa gert samning um afurðaverðið haustið 1944 eins og við gerðum, verður til þess að ganga með til þess að styðja þá sviksemi, sem bændum hefur verið sýnd með framferðinu í verðlagsmálum þeirra haustið 1945. Þ. á m. greiðir hann atkv. með því að samþ. l. um búnaðarráð, sem svipta bændur valdi til þess að ákveða verðlag á afurðum þeirra. Og það er meira, sem hér kemur til greina. Það er vitað, að þetta frv. er flutt að tilhlutun kommúnista. Þó að hv. þm. A.-Húnv. sé meðal flm., þá er frv. flutt af kommúnistum fyrst og fremst til þess að eyðileggja stéttarsamtök bænda. En hv. þm. A.-Húnv. lítur svo á, að yfir stéttarsamtökum bænda geti hann ekki sjálfur ráðið. Og með því að vera með samþykkt þessa frv. er hv. þm. S.-Þ. — jafnframt því sem hann er að deila á Framsfl. — kominn í samstarf með kommúnistum um eitt það versta níðingsverk, sem unnið hefur verið á íslenzkri bændastétt. Þetta er einkennilegt örlaganna spil. En þannig er það. Og það er vitað mál, að ef hv. þm. S.-Þ. greiddi ekki atkv. með kommúnistum í þessu ofsóknarmáli á íslenzka bændastétt, þá væri þetta mál fallið hér í þessari hv. þd. Og þetta er sami hv. þm., sem er að deila á Framsfl. fyrir það, að hann hafi rætt við kommúnista haustið 1942, þegar Sósfl. óskaði eftir því, að Framsfl. ræddi við þá. Ég held, að það gildi þá hið sama um þetta eins og það, sem ég var að lýsa með nokkrum orðum hér áðan, að það snýr einkennilega margt öfugt við nú hjá þessum hv. þm., miðað við það, sem áður var. Og af því að hv. þm. S.-Þ. gaf mér heilræði fyrir nóttina, þá held ég, — án þess að ég ætli að gefa honum heilræði, — að hann hefði gott af að hugsa um það, áður en hann gengur til svefns í kvöld, hvernig stendur á því, að menn og málefni, vinir og óvinir, þetta allt snýr nú öfugt við gagnvart þessum hv. þm. samanborið við það, sem var fyrir nokkrum árum. Þetta er spurning, sem hv. þm. hefði gott af að hugleiða, um leið og hann leggst til svefns.