06.02.1946
Neðri deild: 64. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (2258)

149. mál, virkjun Sogsins

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Hv. 1. þm. Árn. innti eftir mínu áliti á þessu frv. Ég skal gjarnan verða við ósk hans. Ég hef hlýtt á þá, sem frv. hafa borið fram, og eins hina, sem hafa andmælt því. Einnig var mér áður kunnugt um frv. Mér var sent það af rafmagnsstjóra Reykjavíkur, áður en það kom fram hér í hv. d., og ég skal segja það strax, að ég fyrir mitt leyti hef ekkert við það að athuga; þótt það sé samþ. í svipuðu formi og það liggur fyrir nú.

Hv. 1. þm. Árn. taldi áðan, að ég ætti að sýna a. m. k. nokkra umhyggju fyrir mínu fóstri, þar sem raforkul. væru. Ég skal viðurkenna það, að mér er sárt um það frv. og ég óska, að það gangi fram. En hv. 1. þm. Árn. man kannske eftir því, þegar það var hér til umr., að þá lét ég í ljós nokkurn vafa á því, að rétt væri að binda, eins og frv. gerði, við ríkið rekstur og allar framkvæmdir í þessu efni. Ég minntist þá á till., sem komið hefði fram á sambandsfundi íslenzkra rafveitna, þar sem bent var á, að ekki væru allir sammála um, að bezt væri að binda þetta eingöngu við ríkið. Og rökin fyrir þessu voru þau, að aðalatriðið væri, að allir aðilar, sem hefðu möguleika til framkvæmda í þessu efni, tefðust ekki, ef þeir sjálfir gætu framkvæmt gagnlega hluti, sem ekki kæmu í bága við heildarplanið, sem verið væri að vinna að. Og ég álít, að þetta frv, geri það ekki. — Hv. 1. þm. Árn. minntist á heimild varðandi þetta í raforkul. og gat þess, að hv. 8. þm. Reykv. teldi, að framkvæmdir þessar væru samkv. ákvæðum þeirra laga, eða liti svo á, að skýra mætti a. m. k. ákvæði þeirra l. á þann veg. Einnig gat hv. þm. þess, hvernig ég hefði litið á þau ákvæði laganna og skýrt þau. Ég fyrir mitt leyti tel, þótt þau ákvæði gangi að vísu í svipaða átt, að þau nægi ekki til þeirrar starfsemi, sem hér er fyrirhuguð, og þurfi því að setja sérstök l. varðandi þetta mál. Aðalatriðið frá minni hálfu er það, að Reykjavíkurbær og Sogsvirkjunin hafi nokkra sérstöðu í þessu efni. Í fyrsta lagi þá, að hún er byrjunarvirkjun í stórum stíl og hún hefur selt orku út fyrir takmörk Reykjavíkur. Reykjavík hefur keypt sér víðtæk vatnaréttindi þarna. Þá má benda á, að Rafveita Reykjavíkur hefur unnið um áratugi að undirbúningi þessarar virkjunar og sérfræðingar og starfsmenn Rafveitunnar hafa innt allar rannsóknir af hendi og hafa haft á hendi alla málsmeðferð frá upphafi. Ef ríkissjóður gripi nú fram fyrir hendur þeirra, gegndi um það allt öðru máli en þótt ríkissjóður tæki að sér virkjun þar, sem engar undirbúningsrannsóknir hafa verið framkvæmdar og litlar eða engar líkur til, að viðkomandi hérað geti haft það verk með höndum. Reykjavíkurbær hefur þeim fagmönnum á að skipa og þá möguleika, sem fáir eða engir hafa aðrir. Við þetta bætist svo það, að sú stofnun, sem ríkisstj. ræður yfir til þess að framkvæma rafvirkjanir út um land, Rafmagnseftirlit ríkisins, hún er yfirhlaðin störfum. Þótt þeirri stofnun yrði falið að framkvæma verkið, gæti hún það ekki nú eins fljótt og rækilega og sérfræðingar Reykjavíkur. Rafmagnseftirlit ríkisins hefur yfir að ráða takmörkuðum mannafla og getur ekki með litlum fyrirvara tekið að sér verk, sem kostar tugi milljóna króna, án þess að hafa um það mikinn og víðtækan undirbúning. Þetta er að mínu viti sérstaða Reykjavíkur. Málið hefur frá upphafi verið í höndum bæjarins, bærinn hefur aflað sér nauðsynlegra réttinda, bærinn hefur látið fara fram rannsóknir og gera áætlanir þær, sem gerðar hafa verið, og hefur sérfræðingum á að skipa, sem nægja til að hafa framkvæmdirnar með höndum. Þetta er sú hliðin, sem að Reykjavík sjálfri snýr. Þá er að líta á hina hliðina, — hvernig séð er fyrir rétti annarra landsmanna en Reykvíkinga við framkvæmdir þessar. Hvernig er séð fyrir því að tryggja öðrum landsmönnum rafmagn frá þessu orkuveri? Ég get ekki betur séð en fyrir því sé séð eins vel og hægt er að hugsa sér. Hér stendur: „Sogsvirkjunin selur raforku til Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Skylt er henni einnig að láta í té raforku við stöðvarvegg í orkuverum og við afspennistöðvar til almenningsnota í nálægum héruðum við kostnaðarverði og að viðbættum allt að 10%. Þetta verð má þó aldrei fara fram úr því, sem Rafmagnsveita Reykjavíkur borgar fyrir raforkuna miðað við afhendingu á sama stað.“ Ég get ekki betur séð en almenningi séu tryggð afnot af þessari raforku alveg eins og Reykvíkingum. Í 1. 2. gr. frv. er einnig gert ráð fyrir því til frekara öryggis, að fyrirtækið skuli vera sérstakt fyrirtæki með sérstöku reikningshaldi og rekið samkvæmt reglum, sem ráðh. staðfestir. Ég fæ ekki séð, að með þessu sé tækifæri fyrir Reykvíkinga til að nota fyrirtækið til sinna þarfa á kostnað annarra, heldur séu einmitt mjög greinileg ákvæði, sem tryggi almenningi í landinu not af því.

Ég tel svo óþarfa að eyða frekar orðum að þessu atriði. Ég er á sömu skoðun og ég var, þegar raforkulögin voru afgreidd til Ed. Ég álít, að fyrst og fremst beri að líta á það, að sem mestur hraði verði á þessum framkvæmdum. En ég lít ekki eins á það, hvort hér er um að ræða hreinan ríkis- eða bæjarrekstur eða rekstur félaga, sem starfa í almennings þágu, svo framarlega sem rekstrarformið tryggi almenningi sömu not á sama hátt og við sama verði og ef um ríkisrekstur væri að ræða. Ef slíkt er fyrir hendi, sé ég engan mun á þessu. Almenningsnotin eiga að ganga fyrir. Þegar lagðar verða línur til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar og um Árnessýslu og víðar, þá selur þessi virkjun þangað rafmagn, þegar þess er óskað. Heimild er í l. um, að þetta verði gert þessum stöðum að skaðlausu.

Ég skal svo með nokkrum orðum minnast á ábyrgðarheimildina, sem rædd var hér nokkuð af hv. þm. Borgf. Réttilega benti hv. þm. á, að hér væri gengið út frá, að ábyrgð væri — veitt fyrir allri upphæðinni af kostnaðarverði verksins, en hins vegar er annars staðar í raforkulögunum gert ráð fyrir 85% ábyrgðarheimild. En í þessu sambandi má benda á það, að þar, sem 85% eru samþ., þar er gert ráð fyrir sérstökum héruðum eða I. um sérstakar virkjanir og miðað við 85% af fullri virkjun. En ef allur kostnaður veitunnar er hér tekinn með, þá má gera ráð fyrir, að ekki verði farið fram úr 85%, enda á það bent af einum hv. þm., sem staðið hefur að flutningi þessa frv., að þetta takmark mætti líka setja inn í l., og er rétt, að hv. iðnn. athugaði það. Annars má benda á það, að nokkru öðru máli gegnir um fulla ábyrgð handa þessari virkjun en ýmsum öðrum, þar sem þessari virkjun er lagt ýmislegt á herðar, sem öðrum veitum er ekki áskilið. Þessari veitu er skylt að selja almenningi í landinu rafmagn til jafns við íbúa Reykjavíkur, sem byggja hana, án tillits til þess, hvort íbúar Reykjavíkur hafa nægilegt rafmagn til sinna afnota. Þeir eru jafnréttháir og þeir, sem búa utan bæjarins. Þegar svo er ástatt um fyrirtæki, sem frá upphafi er kostað af bænum, þá er tilefni nokkurt til þess, að fríðindi kæmu í einhverri mynd á móti, sem í þessu tilfelli væri ábyrgðarheimild.

Ég tel ekki, að þetta frv. brjóti nokkuð í bága við frv. til raforkulaga. Ég tel það á vissan hátt eðlilegt framhald af því, þótt ekki sé heppilegt að setja frv. sem sérákvæði í þau. Hér á landi er ekki heldur um svo mörg fyrirtæki að ræða, sem eru hliðstæð þessu, svo að ekki er ástæða til að óttast, þótt sérstaka lagasetningu þurfi um þessa virkjun. Það er ekki nema ein virkjun önnur hliðstæð þessari, og þó aðeins að nokkru leyti, Laxárvirkjunin. Og með sömu skilyrðum er ég óhræddur að veita Laxárvirkjuninni sams konar heimild og þetta frv. gerir ráð fyrir Sogsvirkjuninni til handa. Aðalatriðið er, að þessi framkvæmd gangi greiðlega og haganlega og allir kraftar, sem fyrir hendi eru og vilja vinna, séu notaðir til hins ýtrasta, án þess að koma í bága við heildarplanið.