06.02.1946
Neðri deild: 64. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (2260)
149. mál, virkjun Sogsins
Frsm. (Sigurður Thoroddsen) :
Það hafa orðið talsverðar umr. um þetta mál., og hefur frv. sætt gagnrýni frá tveim þm. Að vísu hafa 8. þm. Reykv. og samgmrh. að mestu tekið það ómak af mér að svara, en ég vil þó gera örlitlar aths.
Iðnn. var sent þetta frv. af bæjarstjórn Reykjavíkur og beðin um flutning á því. Það er ekki rétt, sem hv. 8. þm. Reykv. sagði, að ætlazt hafi verið til þess, að við annaðhvort flyttum frv. eða samræmdum það og felldum inn í frv. til raforkulaga, enda kom það fullseint til þess. En hins vegar held ég, að það hafi verið rétt hjá n., þó að þetta hvort tveggja hafi verið til, að flytja þetta sem sérstakt frv. Hér er um það mikið mál að ræða, t. d. er ábyrgðarupphæðin það stór, að mér finnst miklu heppilegra og viðkunnanlegra, að Alþ. fjalli um það sérstaklega og veiti þessa ábyrgð með sérlögum en að fella það inn í almennu lögin. Með því væri velt á hlutaðeigandi ráðh. fullmikilli ábyrgð, sem hann ætti að losna við.
Við samræmdum þetta frv. Það var samið, eins og hv. 8. þm. Reykv. tók fram, af rafmagnsstjóra Reykjavíkur, Steingrími Jónssyni, og við í iðnn. höfðum um það samvinnu við forstjóra Rafmagnseftirlits ríkisins að samræma það við frv. til raforkulaga, og við sem sagt unnum að þessu þrátt fyrir vöntun á verkfræðikunnáttu, eins og hv. 1. þm. Árn. bar mér á brýn. En ég hafði þó kunnáttumenn með mér í þessu, og við þóttumst hafa samræmt þetta frv. og finnum ekki, að hér beri svo mikið á milli. Ég held, að hv. 1. þm. Árn. sjái ofsjónum yfir því, sem hér er á ferðinni, því að eins og áður hefur verið bent á af hv. 8. þm. Reykv., þá felst það, sem þetta frv. fer fram á, einnig í 1. gr. frv. til raforkulaga, og meira að segja fer sú gr. Öllu lengra.
1. þm. Árn. tók fram, að honum þætti sanngjarnt, að Reykjavík fengi leyfi til að halda þeim virkjunum, sem hún hefur þegar virkjað, og því fremur finnst mér hann sjá ofsjónum yfir því, sem hér er á ferðinni, þar sem hér er um stigmun að ræða. Hvar á að setja takmörkin? Þyrfti að binda þau endilega við 16500 kílowött frekar en annars staðar?
Hv. þm. kvartar yfir því, að nú sé Ljósafossstöðin fullvirkjuð, en ríkissjóður eigi ekki eyris virði í henni. Þetta er auðvitað rökrétt afleiðing af lögunum um Sogsvirkjunina 1933. Þau l. gera ekki ráð fyrir, að ríkið eigi í Sogsvirkjuninni fyrr en Sogið er virkjað að helmingi. — Hann kvartar yfir því, að ekki hafi nema einn bær fengið rafmagn frá Ljósafossstöðinni, og mun það rétt. En hv. þm. ætti að vera kunnugt, að rætt var um það í sumar að leggja línu bæði til Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar, sem og verður gert á þessu sumri, og verður þar um að ræða rafmagn frá Ljósafossstöðinni.
Ég held, að hv. þm. þurfi ekki að sjá ofsjónum yfir þessu. Hann gerir sér ekki ljóst, hvað þróunin í raforkumálunum er ör. Menn gerðu sig ánægða með það hér 1933 að setja þau ákvæði, að Reykjavíkurbær skyldi ekki virkja nema hálft Sogið, þá tæki ríkið við. Og hann er undrandi á því, að ríkið skuli ekki enn eiga neitt af Sogsvirkjuninni, en gerir sér ekki ljóst, að þróunin er svo ör núna, að við sjáum fram á það, að orka sú, sem er í Soginu, hún verður fullnotuð í fyrirsjáanlegri framtíð, og þá er skýlaust tekið fram í þessu frv., að helming þess skuli virkja af ríkinu.
Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta nú, en ætla að mælast til þess við formann iðnn., að við höfum fund um málið enn á ný og athugum þetta atriði, sem hefur verið tekið fram um þessi 85%, nú milli umræðna.